“OMG ertu edrú?”

Holy móly seinasta vika var alveg crazy… Byrjaði í Boot Camp, sem er eins og flestir hafa örugglega heyrt massíft krefjandi en skemmtilegt. Svo voru líka venjulegar lyftingaræfingar, hlaupaæfingar og svo var stofnaður hlaupahópur í Arion þannig að ég fór í það líka. Fór líka á athyglisverðan fyrirlestur um stjórnunarhætti og samningatækni sem var svoldið langur en mjög fræðandi. Einnig er góður tími í vikunni búinn að fara í að vinna í samstarfssamningum Pragma og fleiri skipulagsmálum. Föstudagurinn var samt sá dagur sem var mest að gera, að sjálfsögðu vinna um morguninn, svo beint í Boot Camp og þaðan beint með Apple starfsfólki í M16 þar sem var geggjað stuð. Var reyndar með svoldið miklar harsperrur eftir Boot Camp en það var geðveikt adrennalín shock að vera hlaupandi út um allt í camoflage að skjóta á hvort annað. Eftir M16 fórum við að grilla og þá fyrst fór allt til fjandans, ætlaði að skutla Tandra að ná í einhverja Vodka flösku en ákvað þá ekki púströrið á bílnum mínum að fremja sjálfsmorð… það “stökk” af bílnum í heilu lagi… kom reyndar í ljós í gær að allt pústkerfið væri ónýtt og ég þurfti að fá allt nýtt, sem var ekki ódýrt :( Allavegna þá komst ég á bílnum heim, sturtaði mig og skipti um bíl og kíkti í heimsókn til Clöru og svo var kíkt niður í bæ sem entist alls ekki lengi enda allir dauðþreyttir eftir æslaganginn í M16.

Á laugardaginn, eftir vinnu, lét ég loksins aftur af mér og skellti mér á nýja hlaupaskó, skrefamæli og nýtt hulstur utan um iPodinn og skellti mér svo út að skokka í þessu líka yndilega veðri sem ég var búinn að horfa á út um gluggan í vinnunni allan daginn. Um kvöldið fórum ég og Bjarni svo til Adda að grilla og ég kíkti svo með Adda í eitthvað Krónu partý sem var uppfullt af mjög skrýtnu fólki, meikaði alveg heila tvo tíma þar þó ótrúlegt sé og kíkti þá í partý til Jón Pálmars og Guðrúnar. Vorum frekar lengi hjá þeim þannig að það var ekki farið niður í bæ fyrr en að klukkan var langt gengin í þrjú og það voru ógeðslegar raðir allstaðar og við vorum ótrúlega mörg saman svo það gekk ekkert að koma sér neinstaðar inn nema á Celtic þar sem hangið var í nokkurn tíma. Endaði svo kvöldið á að henda Palla kallinum heim eftir að hafa gengið niður Laugavegin með spekingslegar pælingar um hluti eins og gellumyndirnar í gluggunum ská fyrir ofan Kofann og hvort væri ódýrari kostur að ráða sjö mismunandi módel til að sitja fyrir hvert plakk eða hafa bara sömu en breyta henni dramantískt sjö sinnum. Já drykkja leiðir fólk í undarlegar samræður, aðrar slíkar sem ég lennti í var korters samræða um Celebrity-fucklist sem var frekar athyglisvert…..

Helgin einkenndist klárlega af setningunni “OMG, ertu fucking edrú?????” sem var svo fylgt eftir með “Afhverju í andskotanum ertu edrú?” eða “Frábært núna er heimsendir í nánd!!!!”.


Related posts from the blog: