OMG hvað vax er vont!

Jæja það tók sinn tíma en þetta mini-Queer Eye challenge er búið. Hófst eftir skóla í dag með því að ég var settur í klippingu og rakstur, það var tekið semi-crew cut á þetta og svona old school western rakstur með heitum hníf. Eftir snirtinguna á hausnum var farið í að taka til fyri restina af bodyinu og þá var ég dreginn í vax…. það var byrjað á að rífa hvert stingandi strá af bakinu á mér þannig að það er eins og babies bottom og svíður eins og ég veit ekki hvað. Siðan var reynt að taka lappirnar á mér en það var byrjað á aftanverðum kálfanum en mig sveið svo vangefið mikið eftir fyrsta kipp að við hættum við það og lappirnar voru bara teknar með rakvél. Hendurnar og bringan voru svo líka tekin með rakvél sem skilur það eftir sig að mig klæjar eins og mongó. En vá hvað þetta vax dæmi er bloody vont, hvað er að ykkur konur, við værum okkur ekki það mikið yfir leggjum sem eru ekki smooth as hell að þið þurfið að leggja þetta á ykkur…. Rámar nú í að Sara Dögg og Ástrós hafi farið saman fyrir þó nokkru síðan í Brazillian vax, langar ekki að hugleiða hversu sárt það hefur verið.

Næst á dagskrá var að henda mér í ljós og skella svo á mig nýju prógrammi í ræktinni sem var tvískipt og hvort um sig þrír tímar. Frábært. Tók fóta prógrammið og fólk virkilega starði á mig enda klæjaði mig í fæturnar og bringuna eins og ég veit ekki hvað.

Verð nú samt að segja að ég er bara nokk sáttur með afraksturinn enda fékk ég kassa og flösku af Jack til að blanda í Drambuie frá strákunum eftir þetta. Merðirnir ætluðu að vera rosa sniðugir og taka þetta uppá video en sem betur fer klúðraðist það þannig að ekkert Youtube í þetta skiptið :)


Related posts from the blog: