Önnur róleg helgi
Posted on Mar 18, 2007 in BlogEins undarlegt og það ku vera þá var þessi helgi barast næstum alveg eins og seinasta, fór að læra á föstudeginum fram eftir kvöldi, tók reyndar smá pásu til að fara og sjá 300 en hélt svo áfram að læra fram eftir kvöldi og kíkti svo aðeins niðrí bæ, stoppaði bara stutt við og hitti á Bjössa og co sem höfðu verið að koma úr vísó í Kaupþing. Bjössi kallinn var orðinn vel blekaður og hljóp fram og til baka og lét eins og api (bókstaflega, úggg, úgg og handahreyfingar). Ég skutlaði liðinu heim og hélt svo niður á Café Rosenberg (staðurinn sem enginn veit hvar er, hliðiná Kebabb staðnum á Lækjargötu) og hitti Söru og Gassa, sátum smá stund á Rosenberg og svo skutlaðist ég með aðra ferðina af fólki heim. Þegar ég var búinn að henda öllum heim fór ég enn eina ferðina niður í bæ og var orðinn hálfgerður leigubílstjóri eftir kvöldið. Svo í kvöld var bara chill þar sem ég var að búa til framboðsvefinn fyrir kosningu næstu viku og svo var bara farið útí video gláp. Þannig að það er búið að fara úr drykkju báða daga hverja helgi í bílstjóri á föstudegi og chill á laugardegi tvær helgar í röð. Margir eru farnir að spá mér hrikalegum fráhvarfseinkennum :P
Þarf eiginlega að fara að pæla aðeins í hvernig ég á að snúa mér í þessari kosningabaráttu en þarf að klára plakötin og bæklinga og þannig á morgun og svo ætla ég að skella upp einhverjum smá bás á mánudaginn og gera þá eitthvað smá flipp í leiðinni, eitthvað sem vekur athygli.
Annars var ég eitthvað að skoða vefinn því mér leiddist áðan og rakst á einhverja frétt um Technosexuals á NBC. Hvað í andskotanum er eiginlega að þessu liði, Bandaríkjamenn eru gjörsamlega geðveikir…
Af einhverri ástæðu er Sólon orðinn “the place to be” hjá HRingum eins og er og Kári og Elli eru búnir að útnefna hann sitt annað heimili um helgar og Kári hefur ekki látið sig vanta þar í nokkra mánuði samfleygt. Rakst á þessa mynd þar sem er eins og Kolla sé geðveikt hissa á að sjá Ella á Sólon en það er náttúrulega út í hött enda elskar Elli Sólon.

Svona í lokin eru nokkur web comic:
Related posts from the blog:
- Sleppa drykkju heila helgi?
- Beygluð helgi
- Manchester tónleikarnir
- Prófa rugl…
- Fyrsta helgin afstaðin









