Til hamingju Pragma
Posted on Feb 24, 2007 in BlogÁ föstudagsmorguninn tókst mér að slá öll met og mætti hressari en allt í stærðfræði klukkan 8:15. Eftir tíman tók við allskonar undirbúningur og vitleysa fyrir kvöldið og endaði á hlaupum á seinustu stundu að taka rútuna í vísó. Í þetta skiptið var farið í vísindaferð til ÍAV uppá gömlu herstöðinni, basically þá var öll ferðin bara að keyra um og drekka bjór og skoða stöðina. Síðan var boðið uppá goodie mat og meiri bjór. Fólk var orðið vel drukkið á þegar lagt var á stað aftur í bæinn. Þegar komið var í bæinn var farið beint á Broadway og partýinu skellt í gang. Í þetta skiptið var boðið uppá nýjan drykk á barnum London-skot sem voru 300ml ópal skot og ótrúlegt en satt voru nokkrir sem keyptu þannig. Partýið gekk mjög vel og svo var aðeins kíkt í bæinn.
Laugardagurinn var uppfullur af sama ruglinu og venjulega vinna vinna vinna ég í fínu formi en Tommi algjörlega tjónaður enda Eyrún útí Danmörku og hann tók á í drykkjunni eins og venjulega. Um kvöldið kíkti ég svo aðeins á Guðjón vinnufélaga og þar var aðeins sötrað bjór og tekið óhóflegt magn af mismunadi vodka skotum enda Gaui sérfræðingur í vodka. Við héldum svo til Geira í eitthvað smá partý sem var reyndar frekar fámennt en góðmennt :P Eftir dá góða stund var svo loksins farið niður í bæ, sennilega aldrei farið jafn seint í bæinn, eða klukkan 3. Þá var haldið á Sólon og okkur smyglað inn um eldhúsið. Kári kom líka með okkur inn og við héldum upp þar sem var aðeins dansað. Inná Sólon hittum við á þá manneskju sem hlýtur bara að vera háð djamminu í 101 en það var hún Kolla nýlennt frá Austurríki klukkan 12 og mætt á djammið stuttu seinna, það er sko harka. Á endanum pilluðum við okkur svo heim.
Related posts from the blog:





