Óvissa
Posted on Aug 27, 2006 in BlogÞá er það sko byrjað, maður er kominn í sama góða farið og venjulega læra alla vikuna og drekka sig blindfullan allar helgar. Á föstudaginn hélt Pragma stórskemmtilega óvissuferð gíruð inná að vekja áhuga nýnemana á félaginu. Fyrst var að sálfsögðu gengið út frá því að allir yrðu ógeðslega fullir og því var dælt bjór og skotum í liðið á leiðinni. Síðan var stoppað og haldin keppni í “bjórhlaupi” þar sem fólk sótti sér bjór sem var búið að fela útí móa. Eftir keppnina fórum við svo uppá Reynisvatn þar sem haldið var magnað partý í stóru og fínu tjaldi þar sem boðið var uppá pizzu og meiri bjór. Eftir partýið var síðan haldið niður í bæ á Pravda þar sem voru góð tilboð á barnum og stuð.
Á laugardeginum var svo frændsystkina kvöld heima hjá Einari þar sem allir komu saman og fengu sér að sötra og ræða saman. Síðan var horft á video frá Heiðaveginum árið 1987 sem var frábær skemmtun. Síðan kíkti maður að sjálfsögðu aðeins niðrí bæ.
Related posts from the blog:





