Please shoot me!
Posted on December 19, 2006 in Blog
Bahh, ég hafði rétt fyrir mér með ruglið á föstudaginn, hehe, nokkrir búnir að segja mér sögur af hlutum sem ég mundi ekki eftir frá föstudeginum. Það er ekkert meira kjánalegt en að muna ekki eftir einhverju og ráma svo í það þegar þér er sagt það. Ég tók mig víst vel út við að tækla félaga minn þegar hann var að tala við einhverja stelpu og hann datt næstum á greyið og svo frétti ég að ég hefði tekið gamla góða bullar bara gaurinn og bulla eins og mér einum er lagið…. æi svona hlutir fá mann til að pæla í að hætta að drekka en nei þá væri maður ekki aðhlátursefi fyrir aðra. Það er víst takmark mitt í lífinu að sumra mati en maður verður að vera þekktur fyrir eitthvað :P
Annars var ég að taka til í herberginu mínu loksins í gær eftir aldaraðir af leti og þvílíkur munur, held það hafi farið þrír fullir kassar af drasli burt. Það sem er hinsvegar skemmtilegt við að taka til er allt gamla draslið sem maður rekst á við þetta. Það fyrsta sem vakti áhuga minn voru dagbók og myndir frá sumarbúðunum sem ég fór í til Filipseyja þegar ég var 11 ára. Mjög gaman að lesa þetta rugl, vekur upp minningar um þessa skemmtilegu ferð eins og ógeðslega matinn sem var alltaf steyktur uppúr ógeðslegri olíu og allt brauðið var allt sykrað og helst í mörgum litum. Það var margt mikið skemmtilegt við þessa ferð kanski maður ætti að skoða með að fara sem farastjóri næsta sumar. Vá hvað það er samt fyndið að skoða þessar myndir, scary hvað ég var ótrúlega feitur krakki, talandi um hluti sem “scar you for life” :


Næsta sem ég rakst á voru bæklingarnir með gamla góða Sanyo sjónvarpinu mínu, afhverju í ósköpunum ætli hafi fylgt með fullkomin mynd af hverjum einasta transistor í sjónvarpinu, athyglisvert en bloody useless:

Það fyndnasta sem ég fann var án efa jólagjafir sem mér hefðu verið gefnar án insigla þannig að ekki væri hægt að skila þeim… Hér ber að líta úrvals diska á borð við Aqua, Brady, Jesus Chris Superstar íslenska, Will Smith og ekki má gleyma FIVE!!!!! Allt rykfallið umfram allt og aldrei verið hlustað á þá, sem betur fer komnir í ruslið núna :)

Related posts from the blog:




