Seinasti vinnudagur ársins
Posted on Dec 30, 2006 in BlogBujaca, það var hressilega tekið á því í gær, fyrst var skálað í champagne eftir vinnu til að skála velgengni á árinu. Eftir nokkur glös var farið á Red Chili að troða einhverju smá í sig að borða og svo fórum við heim til Guðjóns að sækja vodka ofl og svo til Tomma. Hjá Tomma voru einhverjir hárgreiðslu félagar hans og þar var setið og spjallað, quotebókin var tekin á þetta enda margar fleigar setningar sem fengu að fljóta eins og þessir stórskemmtilegu innanhús vinnustaða brandarar annar frá Guðjóni og hinn frá Einari hárgreiðslumanni:
“Hvernig ættu þeir að breyta nafninu á iMac. Í MacMac eða???”
“Hvar er eiginlega hárskolan?”
Þetta er svo mikið innanhús dæmi að það hálfa væri nóg :P
Aðrar frægar setningar voru:
“Ég er ekki bara með frænku þinni ég er búinn að vera negla hana í sex ár” – Guðjón
“Ekki að ég sé endilega að gefa hugmyndir en vatnsrúm eru frábær leið til að sofa óvart hjá stelpum. Bara lúpa sig vel upp fyrst.” – Man ekki hver
“Vá hvað þú ert með glæsilegar tennur….. koma þær líka í hvítu?” – Einar
Eftir veruna hjá Tomma röltum við svo niðrí bæ, strákarnir fóru á Rex en ég fór og hitti Bjössa og Snorra á Celtic, síðan var skrall fram eftir morgni og litla systir sótti mig því það var endalaus röð í leigubíl og allt of fáir bílar. Svo var bara ferskleiki í vinnunni í morgun þar sem hver á fætur öðrum keypti vélar sem ekki voru til svo þeir gætu minnkað skattgreiðslur af rekstrarhagnaði.
Reyndi svo að fara eitthvað í ræktina áðan en það var eitthvað slappt og bara lyfta engin brennsla þannig að ég stóð bara í stað frá því í gær. Sennilega eitthvað svipað á morgun enda drykkja í kvöld og ræktin lokar tólf á morgun.
Stöðuyfirlit Átaks:
Dagur 1 – 27/12, morgun – 80,3 kg
Dagur 2 – 28/12, kvöld – 78,4 kg
Dagur 3 – 29/12, morgun – 77,7kg
Dagur 4 – 30/12, kvöld – 77,6 kg
Related posts from the blog:
- Átak – Dagur 2
- Í skólanum er skemmtilegt að vera…..
- Til hamingju mamma
- Átak hefst – Dagur 1
- Ljóti magi





