Sirka 4000 fet
Posted on August 2, 2006 in Blog
Ég, Helgi og Addi fegnum loksins tækifæri til að stökkva í fallhlífastökki í gær í líka þessu yndislega veðri. Ég kom aðeins eftir strákunum þannig að þeir stukku fyrst eitt stökk með öðrum nemanda það stökk gekk rosa vel hjá Helga en þegar Addi var á leiðinni niður gekk allt vel þar til hann bremsaði of snemma og fór síðan úr bremsu og flaug upp aftur og stefndi þaðan af beinustu leið á gaddavírs girðingu. Okkur brá ekkert smá þegar við sáum hann lenda á girðingunni því hann bara lá þana eins og rotaður og við hlutum náttúrulega skelkaðir til að checka á honum en sem betur fer var allt í lagi með kallinn, bara smá skurður á maganum. Á eftir strákunum fóru pro-stökkvararnir í tvö stökk og svo fórum við allir þrír saman. Það er ekkert smá skrítið að vera í flugvél á leiðinni uppí rúmlega kílómeters hæð til að stökkva út. Í þetta skiptið lenntu allir frekar illa, mér tókst að bremsa of seint og lennti á jörðinni á fullri ferð og er þess vegna frekar aumur í löppunum í dag. Vorum að pæla í að fara aftur í dag en ég held ég láti það bíða aðeins þar til ég er betri í löppunum og Addi betri í hnénu því hann lennti eitthvað illa í öðru stökkinu þó hann hafi sloppið við gaddavírin í það skipti :P
Related posts from the blog:





