Sleppa drykkju heila helgi?
Posted on Sep 8, 2006 in BlogHmm kanski frekar seinn á því en seinustu helgi var allavegana rosalegt djamm, á föstudeginum byrjuðum við í stjórn Pragma (mínus Berglind) á að hittast heima hjá Bjögga og Möggu og ég tók það að mér að gera gómsætt lasagna sem heppnaðist mjög vel. Síðan uppúr sjö fórum við niður í bæ á Pravda þar sem við vorum með bjórkvöld fyrir nemendur og ég og Ómar hlupum út á Quiznos og nældum okkur í 10 veislubakka til að fæða liðið. Síðan voru pantaðir einhverjir kútar af bjór og frír bjór meðan birgðir entust. Allir virtust taka mjög vel í þetta og skapaðist góð stemming enda staðurinn pakkaður, með okkur voru verkfræðinemar HÍ, lögfræði HR og hjúkrunarfræðingar HÍ. Síðan var farið á almennileg bæjar skrall til klukkan sjö um morguninn. Klukkan 11 um morguninn kom síðan babb í bátinn þegar ég þurfti að rífa sjálfan mig á fætur eins og zombie og slefast í vinnuna hljóp þá útá bensínstöð og skellti í mig þrem magic til að lifa daginn af. Það var ekkert smá sjokk enda drekk ég aldrei koffín en það kom mér sko af stað og ég var ferskur allan daginn. Um kvöldið var svo “Karla Rúst 2006″ partý heima hjá Adda þar sem good shit stemming og kom upp sá skemmtilegi atburður að þegar búið var að grilla hamborgara og allir búnir með nokkra bjóra og fóru að éta kom ekki píanóleikari og spilaði fyrir okkur dinner tónlist (sjá mynd að neðan) meðan við átum hamborgar og drukkum bjór. Ótrúlegt en satt tókst öllum að halda andliti og enginn fór að hlæja en allir voru nokkuð nærri því :P Síðan var farið í bæinn og ég hef aldrei lennt í jafn miklu veseni að fá bíl, það var á tali hjá stöðunum í svona tvo tíma en að lokum komumst við niðrí bæ og þá var að sjálfsögðu aftur djammað fram eftir morgni.

Núna er alveg miklar efasemdir í gangi hvort maður eigi að láta hafa sig í einhverja svipaða vitleysu um helgina eða taka því aðeins rólega og vera duglegur að læra en á morgun missi ég allavegana af vísindaferðinni í Landsbankann því ég þarf að mæta í eitthvað kokteilboð þar sem verið er að kynna nýja Kringluhúsið. Eftir það er síðan partý hjá Útskriftarráði Verkfræðinema sem maður verður að mæta í, stóra spurningin er bara á maður að djamma eða ekki, alltaf erfitt að gera upp hugann enda stór og brjáluð helgi framundan næst með vísindaferð á föstudegi og óvissuferð á laugadegi….
Á öðrum nótum rakst ég á frábæra afsökun fyrir ritstuldri.
Related posts from the blog:





