Sofa, já takk
Posted on Feb 26, 2008 in Blog
Úff ef það er eitthvað sem ég þarf að lofa sjálfum mér þá er það að hætta þessu rugli fram og til baka með svefn tíma… afleiðing þess að vera latur um helgina var sú að maður er bara að vinna skilaverkefni vikunar á fáranlega stuttum tíma og með litla tilhugsun við efnið. Eftir að hafa verið til klukkan 6 í morgun uppí skóla að ganga frá öllu fyrir daginn fór ég svo heim og hrynja í rúmi í svona þrjá tíma áður en ég mætti aftur niðureftir.
Þrátt fyrir leti í lærdóm um helgina var hún bara fínt, á föstudeginum fór ég í Glitni í sameiginlega vísó milli Pragma, Vélarinn, Naglana og VÍR. Eftir vísó var svo partý á Broadway og djammað fram eftir morgni. Á laugardeginum fór ég með Ella og Kára í eitthvað partý einhverstaðar sem var ágætt. Svo fórum við í bæinn, kíktum aðeins á Apótekið í fyrsta skipt. Það vakti nú ekki mikla lukku og vorum við snöggir að skella okkur bara á Vegamót eins og alltaf. Á vegamótum voru “The Usual Suspects” ásamt útúr fullum Nýsjálenskum stelpum sem reyndu við allt sem hreyfðist og Brasilískum gaurum sem voru að reyna að setja lyf í drykkinn hjá fólki. Elli varð fyrir barðinu á Brasilíu gaurunum en var snöggur að láta Sigga yfirdyravörð vita og að lokum komst upp hverjir sögudólgarnir voru og þeir teknir fyrir.
Á öðrum nótum þá er árshátíð Pragma 2008 í næstu viku og hún verður, svo maður vitni í Barney Stinsson: “It will be legend….. wait for it….dary!!!”
Related posts from the blog:









