Íslenskt iPhone lyklaborð
Posted on May 23, 2008 in SoftwareEF ÞÚ SÓTTIR ÞETTA FYRIR 30. MAÍ SÆKTU ÞÁ UPDATE, var smá villa í einni plist skránni
Loksins komið, íslenskt lyklaborð fyrir iPhone (og iPod Touch). Setti saman pakkan útfrá lausn sem að RIPDev hópurinn (Russian iPhone Developers) þróaði. Lausnin byggir á Mobile Enhancer viðbótinni (hún er sett inn með lyklaborðinu) og hluta af commercial pakka sem RIPDev býður uppá. Út af því að pakkinn er commercial er sá hluti sem notaður hér í lokaðri þróun sem gerir það að verkum að sumir hlutar pakkans eru harðkóðaðir fyrir rússnesku.
Einnig er vert að benda á að við innsetningu er MarkerFelt letrinu í Notes skipt út fyrir Helvetica þar sem að MarkerFelt sem fylgir iPhone inniheldur ekki þ og ð (og ég nenni ekki að teikna þá inn).
Þetta er grunn lausn sem virkar la-la eins og er, nenni ekki að pæla of mikið í þessu því það er búið að breyta svo miklu í Firmware 2.0 sem verður á nýju símunum. Er kominn með þróunarbúnaðinn fyrir FW2.0 og er byrjaður að útfæra svipaða pælingu fyrir það. Vonandi verður iPhone Black bara opinn og samhæfður yfir allt, þá er hægt að skella íslensku lyklaborðskipan inní fastabúnaðar uppfærslu á svipaðan hátt og gert var fyrir MacOS X 10.4

Innsetning á íslensku lyklaborði:
ATHUGIÐ: Til að setja inn pakkan þarf Firmware 1.1.2, Installer og BSD Subsystem að vera inni. (ef þú ert ekki með Installer, aflæstu símanum t.d. með ZiPhone eða sæktu hann á Nulldriver, settu svo inn BSD Subsystem gegnum Installer)
Það sem pakkinn gerir:
Leyfir innslátt á þ,ý og ð í Unicode input fields í iPhone og iPod Touch: SMS, Notes, E-Mail, Safari osfv.
Þekktir gallar:
- Broddstafir (á,é,í,ó osfv) virka ekki á íslenska lyklaborðinu, þarft að skipta yfir á enskt til að skrifa þá.
- Nafnið á lyklaborðinu er Russian/русский og kemur fram þannig á nokkrum stöðum
- Fyrir ASCI input fields er enter og bilsláin með rússnesk heiti
Skref:
1. Ræstu Installer

2. Farðu í sources

3. Smelltu á Edit, svo Add og settu inn aðra af þessum slóðum:
http://www.hansr.net/iphone/isl.xml
http://www.drukkinn.com/iphone/isl.xml
(getur sleppt www. sbr mynd)

4. Farðu í Install og veldu nýja flokkinn Íslenskustuðningur

5. Veldu þar pakkan Íslenskt lyklaborð og farðu í Install, eftir innsetningu, fylgdu leiðbeiningunum:



6. Þegar þú ert búin(n) að endurræsa og fylgja leiðbeiningunum geturðu slegið inn íslenska stafi sbr (þú skiptir milli US og íslensk lyklaborðs með því að smella á hnöttinn):

Related posts from the blog:






En Á? og allir broddstafir?
Er ekki hægt að skrifa broddstafi með því að halda inni viðeigandi staf (a,e,i,o.s.frv.), eins og er hægt á venjulega lyklaborðinu?
Það stendur undir þekktir gallar hér að ofan:
- Broddstafir (á,é,í,ó osfv) virka ekki á íslenska lyklaborðinu, þarft að skipta yfir á enskt til að skrifa þá.
Það þarf að breyta binary skránni til að lagfæra það og ég nenni ekki að eyða púðri í það heldur leggja frekar áherslu á Firmware 2.0
Frábært
Takk fyrir þetta og til lukku!
Ég er búinn að fara eftir leiðbeiningunum en þegar ég fer í Keyboard þá er ekkert sem heitir International þar.
Er búinn að endurræsa símann og er með BSD subsystem.
Veistu eitthvað hvað þetta gæti verið?
Mjög sennilega ertu með firmware eldra en 1.1.2 sem kom með international stuðninginn. Verður þá að uppfæra í nýrra.
Ok. Ég dríf mig þá að uppfæra símann
Takk fyrir þetta.
heyrðu ég uppdateaði símann minn og hann er bara í fokki kemur ekki installer og allt horfið…er þetta eikkað sem er hægt að laga :/
Restoreaðu í Firmware 1.1.4, skv “Restoring or transferring your iPhone settings” hér:
http://support.apple.com/kb/HT1414
Notaðu svo ZiPhone til að aflæsa hann:
http://download.ziphone.org/
Takk Hansi, flottur eins og alltaf!
Takk fyrir þetta, algjör snilld :-)
en er hægt að sitja yfir á enskt aftur ?
Já, smellir bara á hnöttinn aftur.
það virkar ekki að installa þessu hjá mér kemur alltaf: Error Main script executiom failed!
hvað er að ?
Installa BSD Subsystem
Ein dumb spurning hérna. Verður þetta nýja firmware 2.0 uppfæranlegt á þessa “gömlu” iphone-a?
Já firmware 2.0 verður líka á gömlu
Takk fyrir mig :)
sæll er búin að leita að þessu út um allt:) en þegar ég fer í keyboard þá kemur ekki russian…veistu hvað þetta gæti verið??
Örugglega búin að endurræsa eftir innsetningu?