Stærðfræði föstudagur
Posted on Jan 19, 2007 in BlogÁkvað að koma með smá svona rugl fyrst það er föstudagur, ætla að pósta eitthvert stærðfræði rugl á hverjum föstudegi í svona mánuð. Fyrst er það rökleiðsla á að 4=5:
Tökum fyrst:
-20 = -20
Sem jafngildir:
16 – 36 = 25 – 45
Sem er einnig hægt að skrifa sem:
4^2 – 9*4 = 5^2 – 9*5
Leggjum 81/4 við báðu megin við jafnaðarmerkið:
4^2 – 9*4 + 81/4 = 5^2 – 9*5 + 81/4
Endurskrifum það svo sem:
(4 – 9/2)^2 = (5 – 9/2)^2
Tökum rótina af báðu megin og leggjum 9/2 við báðu megin og þá fæst:
4 = 5
Einnig hægt að útfæra fyrir aðrar stærðir, gott trix ef þið fáið rangt á prófi :)
Related posts from the blog:





