Stærðfræði helgin mikla

Vá þessi helgi er búinn að vera rugluð, stærðfræði hægri vinstri upp um alla veggi og guð má vita hvað. Föstudagskvöldinu var eytt uppí skóla að undirbúa kennslu í Stærðfræði 4 (tölulegri greiningu) og það eina sem ég gerði semi félagslegt var að fara í ís-bíltúr með Arnóri og Ella… (hversu illa hljómar það, þrír gaurar í ís-bíltúr…).

Laugardagurinn var mjög mikið af því sama, endalaus undirbúningur og læti. Fór aðeins til Ella uppúr miðnætti þar sem var sóðalega ölvun í gangi. Helgi var einna drukknastur, hélt rosalegan monologue um áhuga sinn á almennilegu GANG-BANG og svo tók hann súperman trix á þetta og flaug rækilega á stofuborðið hjá Ella… hann stóð sig líka vel á leiðinni niðrí bæ þar sem hann hellti vodka í magic yfir allt aftursæti hjá mér. Ekki alveg sáttasti maður í heimi með hann Helga minn þetta kvöldið.

Sunnudagurinn var augljóslega uppfullur af enn meiri stærðfræði en það var undirbúningur um morguninn, síðan var kennsla frá 15 til 19. Þá var ég alveg örmagna, það er ekkert smá erfitt að kenna svona lengi. Ég lét samt ekki aftra mér og notaði kvöldið til að byrja að fara yfir skiladæmi í Stærðfræði 2… Dagurinn í dag er búinn að vera eins og morgun dagurinn verður það sennilega líka. Þegar ég verð hinsvegar búinn að kenna námskeiðið frá 18 til 22 á morgun þá verð ég laus við stærðfræðina í smá stund og á miðvikudaginn ætla ég að skemmta mér rækilega þegar ég hætti sem formaður.


Related posts from the blog: