Stærðfræðin búin, þrjú stykki eftir

Það er ekkert meira anti-climatic en að klára stærðfræðipróf í HR. Maður veit ekkert hvernig manni gekk því að kennarinn er svo lúmskur við að búa til dæmi sem eru sértilvik og flipp að maður veit ekkert hvort maður er að gera vitleysu eða ekki. Svo er maður náttúrulega búinn að eyða guð má vita hvað löngum tíma í að læra undir prófið, ég held að ég hafi örugglega eytt svona að meðaltali 10 tímum á dag seinustu 7 daga í að læra undir prófið og eins og venjulega er það mun meiri tími en maður gefur sér í lærdóm fyrir hin prófin samtals…. Kennarinn á líka hrós skilið fyrir að gera svo fáranlega erfitt Matlab dæmi að nær helmingurinn af öllu nemendum slepptu því. Held samt að mér hafi gengið bara allt í lagi og er með góða einkunn úr skiladæmunum sem á víst að gilda sem einhver hækkun.

Það hefur hægt og rólega verið að fyllast í bjórlöngunar mælinn enda komnir 19 dagar edrú og bara 9 dagar eftir að þurkatíðinni og eftir þetta próf er mælirinn kominn í 3 og hálfan “ég vill bjór” kalla af 5 mögulegum:

Annars rakst ég svo á þessa athyglisverðu síðu sem er frekar freaky að fara inná í fyrsta skipti og sjá mynd af sjálfum sér en síðan nýtir innbyggða vefmyndavél í vélum til sýna mynd af manni sjálfum þegar maður fer á hana, held samt að þetta virki bara á Apple vélum enda nýtist þetta við Quartz:


Related posts from the blog: