Starfsmannafundur
Posted on Apr 22, 2006 in BlogAhhhh það er svo gott að vera búinn í prófum að það er vart hægt að koma orðum að því. Fimmtudagurinn fór bara í ofur leti ég basically gerði ekki shite. Í gær fór ég svo í vinnuna og afgreiddi no brainer kúnna sem vissu ekki munin á iPod og iMac :) Eftir vinnu var svo starfsmannafundur. Þessi starfsmannafundur var snilld. Áður þegar ég var að vinna í BT og það var starfsmannafundur þá var liðinu hópað saman inná kaffistofu og messað yfir manni um hversu mikilvægt væri að gera hitt og þetta og blah blah blah þ.e. mjög generískt og leiðinlegt. Hjá Apple er allt annar bragur á þessu, fyrst var að sjálfsögðu boðið uppá Stellu fyrir mannskapinn og svo kynnti Bjarni aðeins það sem væri framundan hjá fyrirtækinu og hvernig gengi með verslanirnar á norðurlöndunum. Eftir þessa stuttu kynningu skelltum við okkur á Einar Ben og fengum okkur að borða. Það var boðið uppá humarsúpu í forrétt, nautalundir í aðalrétt og heita súkkulaðiköku í eftirrétt. Maturinn var mjög góður en það truflaði svoldið að það var fólk á hótelinu hinu megin við götuna að ríða útí glugga en það var náttúrulega bara kómískt að sjá það og hlóu allir mikið yfir þessu :) Eftir matinn skelltum við okkur á nýuppgerða Cafe Paris sem var nokkuð nice bara. Eftir svoldinn tíma á Cafe Paris beylaði ég á fólkinu og hitti Héðinn, Eddu, Andra og eitthvað fleira fólk sem ég man ekkert hvað heitir á Salt, fengum okkur smá að súpa og skelltum okkur svo á ellefuna.
Í morgun tókst mér svo að sjálfsögðu að sofa yfir mig því ég gleymdi að stilla vekjaraklukkuna og síminn var á efstu hæðinni þegar vinnufélagarnir hringdu brjálaðir en það reddaðist allt og ég skellti mér í vinnuna þar sem var ekkert smá at í manni, alveg fáranlega erfitt fólk sem kemur að versla á laugardögum, ertingur allan daginn. Núna er ég bara aðeins að chilla og fagna því að ég þarf ekki að huga að heimavinnu á morgun, muhahha, búinn að fá mér nokkra bjóra og ætla svo að rölta til Berglindar á eftir í spillingar partý með gömlu og nýju stjórn Pragma.
Á öðrum nótum var ég eitthvað að kíkja gegnum web comics og rakst á þessa “djúpu” heimspeki pælingu sem á svo vel við mig :
Related posts from the blog:






