Stefnan tekin á Heimaey
Posted on Jul 31, 2006 in BlogNúna er aldeilis farið að styttast í þjóðhátíð og að sjálfsögðu er stefnan tekin á eyjar. Minns er búinn að halda sér þurrum í tvær vikur þannig að um leið og stefnan verður tekinn á Heimaey eftir vinnu á fimmtudaginn þá verður sko drukkið all hressilega. Ég ætla mér sko ekki að lenda í einhverjum loka mínútu veseni þannig að ég ætla bara að vera snemma á því og taka allt draslið til á morgun og fara í ríkið og þannig. Wooohooo bara þrír dagar.
Bjór minn vor
þú sem ert í flösku
frelsist þinn tappi
tilkomi þín froða
freyði þínir humlar
svo í glasi sem í munni
svalaðu í dag mínum daglega þorsta
og skeyttu ei um vísaskuldir
svo og líka hjá þyrstunautum mínum
eigi leið þú oss á Sólon
heldur ei á Pravda
því að þitt er valdið
gleðin og stuðið
að eilífu
Thule
Related posts from the blog:
- Ofur stærðfræði föstudagur
- 2 dagar í Maraþon
- Maraþon
- 18 klst og 36 mínútur
- Tölvunörda aðferðin við að leysa völundarhús





