Stjörnuspá
Posted on Mar 1, 2007 in BlogVá hvað er málið með svona stjörnuspá dæmi í mogganum, í gær stóð að meyjan “hefði slappað allt of mikið af uppá síðkastið en það væri líka fínt stundum” sem á engan vegin við mig en svo kemur þetta upp í dag:
Meyja
(23. ágúst – 22. sept.)
Plönin sem þú gerðir fyirr mörgum vikum taka of mikið af tíma þínum. Það sem virkaði sem skemmtilegt húllumhæ (þegar það átti að eiga sér stað í óljósri framtíð) er nú orðið að leiðinlegu skylduverki. Farðu samt það gerir þér gott!
Þetta er scary satt enda vikan búin að vera undirlögð í skipulagningu fyrir árshátíð Pragma og Tvíundar á föstudaginn og ég hef ekki haft tíma til að læra nema mjög seint á kvöldinn og verið að til svona 3 á nóttunni til að geta haldið í við skilin og á núna eftir 10% skil í Financial Computer Techniques and Applications fyrir miðnætti á morgun og svo 10% skil í Tölfræði II fyrir mánudag. Ekki nóg með það þá var séð framá að árshátíðin yrði tímafrek en við sáum ekki fram á að þurfa að endurvinna allt með hana því við erum búin að lenda í hverju tjóninu á fætur öðru en þetta er allt að falla saman núna, reddum sennilega restinni á morgun og svo er bara afslöppun og stíf drykkja á föstudaginn.
Related posts from the blog:
- Meiri föstudags stærðfræði
- Styttist í Iceand Airwaves
- Fallhlífarstökk og seðlar
- OMG hvað vax er vont!
- Átak hefst – Dagur 1





