Straumur-Burðarás

Í gær fórum við verkfræðingar í vísindaferð í Straum-Burðarás. Það var ekkert smá geðveikar veitingar þarna, það var skoð boðið uppá bjór, breezer, rauðvín, hvítvín, tópas, ópal og gos, þannig að það var eitthvað fyrir alla. Eftir stutta kynningu sem var því miður ótrúlega innihaldslaus sem var frekar svekkjandi því ég vildi einmitt læra eitthvað um fyrirtækið. Eftir kynninguna var boðið uppá gómsætan mat sem að allir voru mjög ánægðir með. Eftir vísindaferðina vorum við síðan með partý uppí lögreglusalnum í Brautarholti. Var svona frekar þreytt vegna dræmrar mætingar, bara sirka 80 manns og svo var ég mest allan tíman að vinna á barnum þannig að ég hafði ekki tíma til að skella hressilega í mig. Eftir partýið þurftum við að taka saman þannig að allir voru komnir niðrí bæ þegar við fórum út svo ég ákvað bara að skella mér heim, nennti engang vegin að fara niðrí bæ að leita að einhverjum.


Restin af myndunum


Related posts from the blog: