Styttist í Iceand Airwaves

Uhjeee, það er orðið sóðalega stutt í Airwaves og mæli ég klárlega með að fólk fari að skella sér á miða áður en það getur sagt “einn, tveir og sjúklega geðveikir tónleikar”! Það er klárt mál að fyrir 7.900 kr ertu að fá svo sjúklega mikið að það hálfa væri nóg. Ég væri alveg til í að borga þetta verð fyrir það eitt að sjá Bloc Partý á tónleikum og þá er allt hitt sjúkleg viðbót fyrir þennan pening :) Það er búið að festa dagskrána fyrir hátíðina þannig að hægt er að sjá hana hér.

Í heimi blogsins er það nýjasta á nálinni að í dag opnaði aftur fréttavefurinn Sínus, mæli klárlega með að kíkja við:

SINUS.BLOGG.IS

Annars var seinast helgi alveg fín, kareóke á Ölver á föstudeginum með Pragma, svo djamm og svona (video af því kemur um helgina). Á laugardeginum var svo lærdómurinn massaður eins og það væri ekki til eitthvað sem héti sunnudagur. Lærdómurinn hélt svo áfram í vikunni eins og ég veit ekki hvað og ég var að til klukkan 5!!! í morgun við að klára skil í afleiðum, undirbúning fyirr kennslu í stærðfræði og fara yfir skiladæmi. Ætla sko ekki að lenda í þessu rugli aftur. Stefnan er að fara að sofa á miðnætti alla næstu viku!


Related posts from the blog: