Sumarkvef

Ég er alveg extra pirraður eins og er. Einhver ill öfl ákváðu að þegar kæmi loksins sumar á Íslandi þá ætti ég ekkert skilið nema að fá hrikalegasta kvef sem ég hef fengið á ævinni. Þetta er búið að hrjá mér í næstum þrjár vikur núna, byrjaði sem einfallt kvef og ég hugsaði bara “já losna við þetta á tveim dögum eins og alltaf”, en nei það gekk ekki eftir. Þetta var nefnilega ekkert venjulegt kvef, þetta var ofur-ég-hata-hansa kvef sem settist svo í ennisholurnar og stóð sig með einstæðri prýði við að framleiða slím, hor og leiðindi. Sem betur fer átti mamma pensilín sem vinnur á kvefi sem smitast uppí ennisholur og þetta ógeð virðist loksins ætla að ganga til baka. Það er hinsvegar búið að vera ógeð að vera nefmæltur í allan þennan tíma þó kvefið hafi reyndar verið upp og niður hversu slæmt þetta var. Einnig virtist áfengi draga úr kvefinu þannig að það var óspart nýtt sem afsökun fyrir því að fá sér smá drykk.

Helgin var annars ágæt. Á föstudaginn var grillveisla hjá Arion þar sem boðið var uppá ágætist kjöt, mökk mikið af áfengi og svo farið í Singstar 80′s. Eftir allt of marga bjóra þar var farið í eftirpartý þar sem mér tókst að týna skónum mínum og fór í lánsskóm niður í bæ. Lánsskórnir voru ótrúlega stórir og klunnalegir þannig að ég var ekki alveg sáttur. Ég var í einhverjum vafa hvort ég ætti að slaka á og fara bara heim eða halda áfram djamminu. Hitti hinsvegar Bjössa þannig að vatnsglas á barnum breyttist í jack daniels útí vatnsglas og ég ákvað að halda aðeins áfram. Þá kom upp mikið hatur á skónum og eftir að Bjössi fékk að prófa hversu óþægilegt væri að vera í þeim var ákveðið að nú skyldi farið heim og við fengum far hjá Möggu þannig að það var gott save.

Á laugardeginum var ákveðið að gera smá tilraun og drekka ekki stakan bjór allt kvöldið. Í staðinn var farið í gin & tonic, jack & drambuie, gin & tonic, jack í magic, jack í cult, gin & tonic, captain í magic og svo nátla nokkra gin & tonic í viðbót. Þrátt fyrir alla þessa drykkju hef ég barast aldrei verið jafn skýr í hausnum á djamminu og héldu nokkrir að ég hefði misst vitið og væri edrú niðrí bæ…. Allavegana þá byrjaði kvöldið á að ég kíkti með Bjössa í eitthvað partý í austurbænum sem var fullt af einhverjum stelpum sem ég útskrifaðist víst með úr versló en mundi ekki baun eftir… mjög funky. Skutluðumst svo með Baldri og Einari Haralds niður í bæ þar sem kíkt var á Vegó, Celtic og Prikið. Það var reyndar fáranlegt hvað maður hitti marga í bænum þetta kvöld, gjörsamlega allir að djamma, hitti fólk úr öllum skólum og vinnum sem ég hef verið í yfir ævina þannig að það er nú ekki lítið dreyfing. Allavegana flott kvöld, ferskt djamm og ekkert vesen :)


Related posts from the blog:


1 Comment

  1. það klikkar ekki að maður rekst á þig í bænum gamli, og einstaklega smekklegur síðasta laugardag meira að segja ;)