Til hamingju mamma
Posted on July 20, 2006 in Blog
Það hlaut bókstaflega að koma að því það er sól og ágætt verður á Íslandi. Það var algjör kvöl og pína að sitja í gegnum daginn inní búð með þessa fallegu sól skínandi rétt handan við glerið og svo enginn sem nennir að koma í verslunin á svona dögum nema hörðustu nöldrarnir og skyndikaupendur það er ekki gaman. Fyrst það var svona gott veður var boðið uppá stökk í dag þannig að okkur langaði að fara í kvöld en hættum við því að mamma átti afmæli og fjöldskyldan fór út að borða á Galileó sem var mjög fínt. Ég fékk mér grillaðan skötusel umvafinn í beikon og það var alveg frábært. Vonin stendur samt við að góað veðrið haldist fram á morgun daginn og við getum stokkið annað kvöld eftir vinnu. Ég er farinn að titra af tilhlökkun við það að stökkvar út úr flugvélinni á 80km hraða á klst í 3-4000 feta hæð. Shippy :)
Related posts from the blog:





