Tölvunarfræði II
Posted on Apr 25, 2006 in BlogJæja fyrsti heili dagurinn búinn í tölvunarfræði námskeiðinu sem var skellt á okkur næstu þrjár vikunar. Virðist vera bara ágætis námskeið. Námskeiðið er byggt upp með fyrirlestri fyrir hádegi og dæmatíma eftir hádegi mánudaga til fimmtudaga og svo fyrirlestur og próf á föstudögum. Prófin gilda öll 1/3 af loka einkun þannig að það er ekkert lokapróf. Kennarinn er bara ágætis gaur, svoldið nörd þó hann reyni að fela það en fer mjög vel í efnið og er ekert leiðinlegur eins og sumir kennarar sem maður hefur lennt á í ár. Námsefnið er hvernig tölvur virka frá A-Ö og farið í allt frá hvernig vélin nýtir og skrifar í minnið og allt að því hvernig smtp þjónar virka ofl. Held þetta verði bara fínt, sérstaklega því það er engin heimavinna um helgar þannig að maður getur skemmt sér eins og maður vill.
Svona að öðru en skóla málum þá sendi einhver á apple.is inn link á eitt svalasta tölvugerða listaverk sem ég hef séð. Myndin er sirka 100×300 cm og öll teiknuð í Photoshop, alveg magnað. Er líka að pæla í að skipta út litla 512MB USB minnislyklinum fyrir einn svona minnislyklar sem blása út eftir því sem er meiri gögn á þeim, gerist ekki meira useless en það :)
Related posts from the blog:
- Ahhhh það er svo mikið að gera…
- Laugadagsfólk er skull
- Jummy, próf uppáhaldið mitt
- Drauma rugl
- Jólahvað





