Tölvunörda aðferðin við að leysa völundarhús
Posted on Jun 22, 2007 in BlogHver man ekki eftir því sem krakki að leysa völundarhúsa þrautir í hinum ýmsu þrautabókum og þannig. Núna þegar maður er eldri er þetta að sjálfsögðu ekki eins spennandi en þó rakst ég á ótrúlega skemmtilega leið til að leysa svona þrautir með Photoshop eða álíka myndvinnslu forriti. Já það kom líka spurnarsvipur á mig þegar ég sá þetta fyrst en svona virkar þetta semsagt:
1. Finna til völundarhúsar þraut.
Hér er hægt að skanna inn af blöðum, leita á google eða búa til af handahófi með Maze Generator.
Ég ákvað að taka eina af google og búa til eina af handahófi (100x100px, chaotic):
2. Opna í Photoshop.
3. Velja Image -> Mode -> RGB.
4. Velja Image -> Adjustments -> Brightness/Contrast, Contrast +100.
(þarf bara ef mynd er óskýr eða í skrýtnum litum)
5. Nota Magic Wand og smella vegginn hægramegin í þrautinni.
6. Velja Select -> Modify -> Expand og setja viðeigandi pixla.
(fjöldi pixla fer eftir upplausn myndar, algengast er 2 eða 4 px, nota 4 á hestinn og 2 á chaosinn)
7. Velja Rectangular Marquee Tools, hægri smella fyrir utan valda svæðið og velja stroke.
8. Setja inn 2px, lit(t.d. rauður) og passa að það sé Center.
(núna ertu komin/-n með lausn á þrautinni sem er þykka rauða línan, færð einnig einhverja daufa rauða punkta og línur en þú lítur bara framhjá þeim. Einnig ef hægri veggurinn er ekki við enda myndarinnar þá færðu línu utan um myndina en þú lítur bara framhjá því líka)
Related posts from the blog:









