Tuttugu og eitthvað
Posted on Aug 30, 2006 in BlogÞetta var sennilega einn versti afmælisdagur lífs míns, ég lennti í því að vakna alveg fárveikur með nefrennsli, svima, drasl í augunum og læti. Svo var náttúrulega að silast í skólan of seint eins og venjulega og horfa á verðbréfa kennarann fara með kúnstirnar sínar. Restin af deginum er síðan búin að fara í eitthvað vesen út af nemendafélaginu en það ætti að vera búið núna og ég ekki að þurfa að hafa neinar áhyggjur fyrr en …. æi það kemur pott þétt eitthvað upp og allt fer í fokk og stress eins og venjulega. Best bara að búast við því versta þá er maður geðveikt ánægður ef eitthvað gengur loksins upp.
En allavegana þetta var ekki alveg ónýtur dagur, fékk góðan grillmat og síðan eitt stykki Voyage 200 frá fjölskyldunni sem ætti að redda miklu í stærfræðinni í vetur (þeir sem telja mig geðsjúkan fyrir að vera ánægðan með að fá vasareikni í afmælisgjöf hafa ekki prófað þennan dýrgrip).
Síðan rakst ég á þetta stórskemmtilega video áðan, væri alveg spurning um að skella saman improv hóp hér heima:
Related posts from the blog:





