Ull á Community Builder

Arrrggh , ég hélt þessu myndi aldrei ljúka, mér tókst loksins að troað öllum nýnemunum inná Pragma.is. Er búinn að leita leiða til þess að gera það sem auðveldast í svoldinn tíma en ekkert hefur gengið eftir fyrr en í gær var ég til 5 um morguninn að forrita inní kerfið innsetningarferli sem gat tekið við skrá með fjölda manns en nei það gekk ekki því að Community Builder sem kerfið er byggt vill endilega vera með kjaft og skipta upplýsingunum í tvær töflur og hafa aðra sem unicode (alþjóðlega) en hina sænska þannig að íslensku stafirnir fóru auðvitað í fuck, wtf.. ég kann bara ekki nóg fyrir mér til að standa í svona vitleysu og nenni ekki að lesa mér til.

Þannig að dagurinn í dag er búinn að fara í það að stimpla inn hvern notanda á fætur öðrum handvirkt, 133 stykki samtals og 6 klukktímar af copy paste. Jukk, gafst upp oft á leiðinni en þetta er loksins búið. Aldrei aftur eitthvað svona rugl. Rosalega er mig samt farið að langa í bjór eftir þessa vitleysu. Oh well einn dagur í föstudag.

Loka niðurstaða, stórt ull á Community Builder:


Related posts from the blog:

Leave a Reply