Undefined function: breadcrumb()
Posted on February 11, 2007 in Blog
Ég held það sé eitthvað verið að gera grín af nafninu mínu…. einhver snillingur í Snellville þar sem tölvan sem hýsir síðuna er geymd ákvað að það væri sniðugt að uppfæra nokkur component fyrir PHP á föstudegi þannig að hann eyðilagði náttúrulega nokkrar skipanir og fór svo heim og ekkert hægt að lagfæra fyrr en á morgun. Grrr. Þessi villa lýsir sér þannig að ekki er hægt að lesa footerinn á síðunni rétt og ekki hægt að komast í myndasafnið því að skipuninn breadcrumb() finnst ekki (einhver hefur verið að lesa Hans og Grétu og er að fucka í mér…).
Allavegana þá er helgin búin að líða hratt að vana, á föstudaginn skelltum við okkur í fremur fámenna vísindaferð í Skýrr þar sem var messað yfir glærum út í eitt, var samt ekki leiðinlegt fyrr en einn gaurinn kom með glæru þar sem maður þurfti kíki til að lesa öll 814 atriðin sem stóðu á henni og það sem kom á eftir henni var ekkert betra. Það var boðið uppá bæði Stellu og Kalda. Þetta var í fyrsta skipti sem ég smakkaði Kalda og ég er ekki hrifinn, alls ekki minn bjór. Eftir vísó héldum við niður á Pravda þar sem var frír bjór í boði Tvíundar.
Ég skaust svo aðeins frá því Óli átti afmæli á fimmtudeginum þannig að ég hitti á kauða og ég bauð honum út að borða á Caruso. Svo var stefnan tekin af Pravda og yfir á Hressó í Pub Quiz með viðskiptafræðinni þar sem var massa stemming og enn meiri frír bjór. Ég og Elli lentum í þriðja sæti þrátt fyrir að vera vel í því :)
Eftir Pub Quiz var bara eitthvað rölt og rugl og svo í fyrrafallinu heim.
Á laugardaginn var svo eins og alltaf vinna, þar sem ótrúlega leiðinlegt fólk kom og pirraði sig á því að það gæti ekki lesið bæklinga eða notað google og heimtaði að fá upplýsingar með silfur skeið. Eftir vinnu var lagst yfir skólabækurnar þangað til ég varð geðveikur uppúr ellefu og þá var farið í partý og sópað í sig nokkrum Jack í Drambuie og svo farið niður í bæ. Ég nennti ekki að vera lengi því það var tími klukkan 9:00 þannig að ég var kominn heim uppúr þrjú. Var svo vakinn með símtali klukkan hálf átta, ekki besta sem ég veit en ég vaknaði allavegana á réttum tíma og mætti í fyrsta skipti ever í heilan Financial Computer Techniques and Applications tíma, jeyhhh.
Í partýinu í gær þá lennti ég í hinum íslenska Carson Kressley (Queer Eye for the Straight Guy) og hann var eitthvað ósáttur með lookið á mér (órakaður, hárið farið að vaxa í krullu fax ofl) þannig að ákveðið var að taka mig í svona Queer Eye dæmi á morgun klukkan eitt, verður gaman að sjá hvernig fer, ákvað að skella inn fyrir myndum áður en draslið byrjar:
Related posts from the blog:







