Útrskriftarferð í Mexico 2008

Það hlaut nú að koma að því en eftir þriggja ára skemmtilegt og þroskandi nám er maður loksins kominn með BSc gráðuna í Fjármálaverkfræði ásamt samnemendum mínum til þessara þriggja ára og vorum þar með fyrsti hópurinn sem útskrifast út fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Áður en við útskrifuðumst héldum við hinsvegar í frábæra tveggja vikna útskriftarferð til Cancun í Mexico. Við héldum af stað strax eftir að endurtektarprófum lauk hjá þeim sem þurftu að heyja slík og fórum þá fyrst til Orlando í Florida. Hópurinn var augljóslega föngulegur og tilhlökkunin fyrir því að komast í frí í hámarki. Þar sem að maður var nú kominn í frí var auðvitað fengið sér nokkra bjóra og svona fyrir flug (nema Darri-SuperCut sem fékk sér bara vatn)

 

Flugið til Orlando var langt og leiðinlegt því ég náði ekkert að sofa. Þegar við komum svo til Orlando skelltum við okkur á Denny’s að borða og svo var farið í 7/11, keyptur bjór og drukkinn á hótelinu. Um morguninn fórum ég og Addi á Waffle House og fengum feitasta morgunmat sem ég hef fengið á ævi minni, ég fann barast kransæðarnar mínar fyllast hratt og örugglega. Frá Orlando tókum við svo flug beint til Cancun.

 

Þegar við komum á hótelið í Mexico fékk Ómar Þór vægt panic kast þegar hann sá að veðurspáin kallaði á rigningu og storma allan tímann sem við yrðum þarna. Hann sefaðist þó þegar hann var sannfærður um að það yrði næg sól og veðurspáin í Mexico væri haldið úti af fjarskyldum ættingja Sigga Storms sem færi gjarnan með fleipur. Hótelið sem við vorum á hét The Great Parnassus og var fimm stjörnu all-inclusive hótel sem var ekki að verra lagi enda frábært að hafa auðvelt og frítt aðgengi að nóg af áfengi og fullt af veitingarstöðum með ágætis mat.


 

Ólíkt öllum öðrum útskriftarferðum í heiminum var ekki mikið púður lagt í djammið til að byrja með og meira lagt uppúr skemmtilegum ferðum og allskonar afþreyingu. Við fórum snemma í ferðinni til Chichen Itza þar sem við fórum að skoða gamlan Mayan brunn og píramída. Í brunninum var boðið uppá að stinga sér í hann og flestir skemmtu sér mjög við það. Hjá píramídunum fengum við svo skemmtilega skoðunarferð og skoðuðum svo svæðið líka af sjálfdáðum en það var mjög gaman að sjá minjarnar.


 

Héðinn “DareDevil” að hoppa í brunninn:


 

Til viðbótar við Chichen Itza ferðina fórum við og keyptum pakka tilboð þar sem við fórum í dagsferð til Isla Mujeres, Aquaray ferð, snorkel, veiðiferð, kennslu í köfun á hótelinu og köfunarferð út við eyjuna Cozumel. Allar þessar ferðir voru mjög skemmtilegar nema veiðiferðin sem var mjög dýr lúr því ég lág allan tímann sjóveikur. Köfunin stóð klárlega uppúr sem skemmtilegust enda fórum við að skoða kóralrif og sáum við Nurse Shark!!

 

Varðandi djammið í ferðinni og Cancun almennt þá verð ég að segja að ég fílaði það bara alls ekki nógu vel. Djammið þarna er svona eitthvað bandarískt glans djamm þar sem borgað er alveg hellingur ($40-$60) fyrir að fara inná staðinn og þar er allt troðið og þó það sé frítt á barinn kemstu næstum aldrei að og þurftir þess vegna að “leigja” þér þjón á borð. Þrátt fyrir hversu dýrt og mikið vesen var að fara á djammið þarna var alveg gaman þegar við fórum, tókum spilaleik á einu staðnum með endalaus skot sem refsingar. Einnig fórum við tvisvar á stærsta skemmtistað í Mexico, The City sem var crazy og svo á Coco Bongo sem var með rosalegt show meðan maður sötraði áfengi í gríð og erg.




 

Þó maður væri í Mexico þá var ég fáranlega lélegur í að tana og fór bara tvisvar í sólbað og endaði þessvegna með rosalega skemmtilegt Oreo far… Annars var einnig góð aðstaða til íþróttaiðkunar á hótelinu. Það var rækt, fótboltavöllur, körfuboltavöllur, tennisvöllur og strandblakvöllur. Þetta var nýtt í takmörkuðu magni en eitthvað þó og stelpurnar “hlupu” kvennahlaup.


 

Eftir tólf daga veru í Mexico héldum við til New York þar sem við fengum nokkra klukkutíma áður en við héldum heim á fróna. Héðinn, Helgi og Rut kíktu niður á Manhattan en flestir kíktu nú bara í moll þar sem misjafnlega mikið var verslað. Þegar við ætluðum í mollið báðum við um bíl í lobbyinu og héldum að við fengjum stóran leigubíl en svo kom í ljós að það var víst limma sem við fengum þannig að við enduðum á að fara í moll í Queens í limmu…. frekar kjánaleg tilfinning! Ég fann ekkert af viti en stelpurnar misstu sig í HM eða Victoria’s Secret eða báðum, sérstaklega Arna ShopMaster. Eftir verslunarleiðangurinn fórum við svo og keyptum fullt af bjór í tveimur ferðum í einhverja litla Araba búð í miðju Queens sem var eins og atriði úr bíómynd. Svo var setið uppá hóteli, sötraður bjór og spilað fram eftir morgni.

Myndir úr ferðinni:
*VALDAR MYNDIR* (ferðin frá mér séð að mestu leiti)

Myndir frá Adda
Myndir frá Brynjari
Myndir frá Einari
Myndir frá Hans
Myndir frá Rósu Maraþon myndara
Myndir frá Tinnu
Myndir frá Þórði
Myndir frá Jungle Tour


Related posts from the blog:

4 comments

  1. Tinna Ósk

    Alveg að ELSKA þessa færslu og *valdar myndir*!!! Vá hvað mig langar að fara aftur!! smuuu……hahhaa….. En við verðum bara að hafa reunion á Mex einu sinni á ári :) (þá meina ég samt heima á íslandi ;) )

  2. Vá … þetta er snilld … Geggjuð færsla, geggjaðar myndir … GEGGJUÐ FERÐ

  3. berglind ösp

    Þetta hefur verið stuð ferð! Gaman að lesa =) sjáumst í lopapeysum með bjór í hönd um helgina!

  4. Rósa Dögg

    Völdu myndirnar eru algjör snilld, ekkert smá gaman að skoða þetta :) Já lopapeysan og bjórinn á morgun :)

Leave a Reply