Vantar að kaupa meira minni

Vá hvað það var eitthvað skrítið að vakna í morgun og ætla í buxurnar sínar þegar ég fann allt í einu að það var gat á buxunum og ekkert eitthvað lítið gat, það er sko huge:

Ég held ég ætti sennilega að hætta að drekka eða læra allavegana að drekka skynsamlega…… (Samkvæmt nýjustu talningum er þetta í áttaþúsundfjögurhundruðtuttugastaogannað skiptið sem ég segi þetta)

Í gær var farið í vísó í verkfræðistofuna Fjarhitun þar sem við fengum kynningu á fyrirtækinu og svo var farið í veitingarnar, bjór og pizza gerist ekki betra en það nema jú þeir voru líka með hákarl og brennivín þvílík snilldar hugmynd. Hákarlinn og brennivínið var mjög vinsælt en ég held það hafi sennilega verið áhrifaþáttur í minnisleysinu hjá mér varðandi buxurnar… en brennivínið og allur bjórinn stuðlaði líka að því að allir urðu hressilega fullir. Á leiðinni niðrí bæ var síðan dáldið klikkuð stemming í rútunni þar sem Jón Felix leiddi söng á íslenska þjóðsöngnum og sjaldan hefur nokkru lagi verið nauðgað jafn illa. Eftir þessa skull rútuferð fórum við á Pravda og þar var drukkið stíft eins og venjan er og svo var farið í eitthvað rölt sem endaði sennilega með því að ég reif buxurnar mínar einhvernvegin á glæsilega hátt… ég held það sé barast allur vasinn farinn heill af eða eitthvað þannig.

Ég er búinn að vera í ruglinu í allt kvöld því plön kvöldsins féllu upp fyrir, ákvað nú samt að sleppa því að fara á enn eitt fylleríið og nýtti tíman til að byrja að kíkja yfir verðlagningu afleiða með tvíkostatrjám ofl sem þarf víst í undanfara fyrir hið frábæra námskeið Financial Computer Techniques and Applications sem er eftir áramót og á örugglega eftir að skemma margar helgarnar fyrir manni enda kennt á laugadögum og sunnudögum frá níu til tólf fjórar helgar yfir önnina…. illmennska og ekkert annað.

Fuckit, nenni ekki að standa í þessu rugli lengur er farinn að gera eitthvað samt ekki á fyllerí !


Related posts from the blog: