Veikur, fullur, fárveikur
Posted on April 25, 2007 in Blog
Hvað er meira keppnis en að verða veikur þegar maður er að klára prófin, nú auðvitað að verða fárveikur….
Allavegana þá kláruðust blessuð prófin á þriðjudaginn þegar FCTA lauk, sem var mjög skrítið próf þar sem maður tók prófið í tölvu og var net tengdur allan tíman… örugglega einhver sem nýtti sé það til óprúttinna atferla en held að fæstir hafi þurft þess. Annað sem var skrýtið var að kennarinn var ekki á staðnum heldur í símasambandi í Bandaríkjunum. Oh well prófið gekk vel þrátt fyrir smá veikindi. Um kvöldið hittust við strákarnir svo heima hjá Marra í chill og bjór.
Á miðvikudaginn var svo gamla góða vinnan og svo beint í ríkið. Skellti mér í Dalvegi og það voru alveg 50 manns í röð eftir að komast inní ÁTVR svo var röð frá kassanum og út í enda á búðinni. Jæja ég lét mig hafa það enda alkahólþyrstur eins og greinilega margur Íslendingurinn. Þegar ég var svo á leiðinni út var komin helmingi lengri röð inní búðina en áður. Bjallaði eitthvað aðeins í Binna meðan ég var inní ÁTVR og hann sagði að félagi sinn væri með partý og eitthvað af stelpum væri að koma til hans og honum vantaði eitthvað af strákum að mæta líka. Ég hugsaði nátla bara “hmm, vantar stráka…. hljómar desperate, ætli þetta séu svona ófríðar stelpur”. Um kvöldið kíkjum ég, Binni, Héðinn og Bjössi svo á Hannes sem var að halda partýið og ég labba eitthvað inn og tók svona teiknimynda lýta í kringum sig svipinn og háar augnbúnir. Þetta voru þá ekki ljótar stelpur heldur meirihlutinn af keppendunum úr Ungfrú Reykjavík þakka þér fyrir, funky stuff, og svo var fuseball borð og einhver drykkjuleikur í gangi svo þetta var fínt partý. Eftir partýið kíktu við á bæinn þar sem var rölt á milli Hverfis og Sólon eftir henntuleika.
Föstudagurinn var alveg hrikalegur, langar ekki í þannig djamm aftur, ever. Var orðinn hressilega kvefaður og með smá háls særindi en ákvað að það yrði nú samt smá djamm fyrst það væru nú próflok og svona. Byrjuðum á að fara í vísindaferð í EJS sem var massa dull, en nóg að éta og áfengið flæddi eins og ég veit ekki hvað, verst ég var enn á bíl á þeim punkti. Fór svo með Óla Palla að passa að tónlistin væri komin í gang þegar fólk kæmi í partýið og fór svo að ganga frá drasli fyrir kvöldið þegar fólk byrjaði að mæta í partýið. Kom svo aftur ekki löngu seinna með allt fyrir keppnir kvöldsins. Það var chill tekið á þetta í soldinn tíma enda fáir mættir en akkúrat þegar fólk var að byrja að mæta af einhverju viti var keppt í Gettu Betur, Drekktu Betur og Éttu Betur milli Pragma, Technis og Tvíundar. Í Gettu Betur tóku Hákon og Kiddi þátt fyrir hönd Pragma í 13 liða spurningar keppni sem meikaði engan sense. Héðinn drykkjukóngur drakk menn undir borðið í Drekktu Betur þar sem menn kepptu með 1.5L glösum. Seinast en alls ekki síst kom Andri G og sannaði það að bóndar kunna einir manna að borða almennilega og rústað Éttu Betur þar sem menn lögðu atlögu við nokkur kíló af lazzagna á mann sem ég hafði eitt kvöldinu áður í að útbúa með mikilli alúð. Pragma vann allar keppnirnar og svo var djamm fram eftir eftir og ég var reyndar rólegur enda ekkert orðinn rosalega hress í veikindunum en vá hvað fólk varð ölvað þarna það var alveg hrikalegt, sjaldan séð svona mikla sótölvun ussussuss.
Á laugardeginum reyndi hvað ég best gat að mæta í vinnu. Afgreiddi nokkrar vélar og svona, gat varla talað fyrir stífluðu nefi, og ég er ekki að tala um nefmæli, ég þurfti næstum að gera mig skiljanlegan með skrifum það heyrðist svo lítið þegar ég talaði… Svo uppúr hádegi byrjaði ég allur að skjálfa og var kominn með bullandi hita þannig að ég var sendur heim. Þar lagðist ég undir feld og gerð fátt annað en að sofa næstu 26 tíma, þá fannst mér komið nóg. Ég reyf mig á lappir og dreif mig á læknavaktina og fékk einhver lyf. Svo var bara aftur uppí rúm og sofið í aðra 24 tíma. Núna er ég hinsvegar töluvert hressari en samt ennþá veikur sem er frekar leiðinleg tilbreyting enda ekki verið veikur umfram hausverk eða eins dags kvef síðan ég var átta ára… hmmm ég kenni tilkomu þessa gaurs um :P ->
Related posts from the blog:





