Veitingarstaðurinn Orange
Posted on Jun 20, 2008 in BlogAníta Björk byrjaði nýverið að vinna á hinum nýja “fusion & flipp” veitingarstað Orange þannig að fjölskyldan skellti sér saman þangað um daginn til að prufa hvernig veitingarnar á staðnum væru. Hér er lýsingin á staðnum af heimasíðunni:

Orange bíður gestum sínum upp á nýja upplifun á mat og drykk. Matreiðslumenn orange lab leika sér með helíum, fljótandi köfnunarefni og fleiri efni úr lotukerfinu til að framreiða mat á nýjan og spennandi hátt. Hugmyndin að baki orange er að upplifunin skili sér jafnt í skemmtun sem og bragði.
Þessi lýsing samsvara staðnum vel og er mjög gaman að koma þarna að borða. Matseðillinn bíður uppá þó nokkra stórskemmtilega kosti en við kusum að fá okkur “Let’s Go Crazy” sem er fimm rétta matseðill af vali húsins. Það sem við fengum var:
José Jalapeno -On a stick: Reyktur áll í chili, engifer og blómkál með.
Breakfast of Champions: Humarmúslí, jarðskokkar og grasker (í súpuformi borin fram í nýmjólkur fernu!)
3-1: Þorskur og humar
Got Milk: Kálfakjöt, bernessósa og pönnusteiktar kartöflur bornar fram í skyndibita frönskupoka.
Ónefndur eftirréttur: Súkkulaði kaka með mango sósu og berja mix eldað uppúr fljótandi köfnunarefni borið fram eins og þurrís.
Ég hafði mjög gaman af því að fara á staðinn og maturinn var í alla stað frábær og þjónustan til fyrirmyndar. Held maður yrði samt örugglega smá svangur ef maður færi bara í einn aðalrétt, mæli með að fara í “Let’s Go Crazy” ef þið kíkið á þennan stað.
Related posts from the blog:





