Verslunarmannahelgi 2008
Posted on Aug 7, 2008 in BlogSeinasta helgi var að sjálfsögðu verslunarmannahelgi og í þetta skiptið sem svo oft áður var hún algert æði gæði. Á laugardeginum var haldið á Óliver þar sem Bingó drengirnir héldu fögnuð fyrir þá sem héldu sig við 101 þetta farsæla kvöld. Á sunnudeginum var stefnan hinsvegar tekin á þjóðhátíð. Því miður féll niður allt flug yfir daginn en við rétt náðum seinustu ferð með Herjólfi því fyrst maður var lagður af stað var náttúrulega ekki aftur snúið. Við komum til Eyja uppúr kvöldmat og héldum beint í dalinn þar sem djammað var þar til að öll orka var úti. Svo var haldið aftur heim í land með Herjólfi í hádeginu og rækilega sofið þegar við komum heim.
Related posts from the blog:
- Hallgeirsey 2008
- Útrskriftarferð í Mexico 2008
- Beint á iPodinn – Apríl 2008
- Beint á iPodinn – Maí 2008
- Hallgeirsey 2008





