Vísó og draugagangur?
Posted on Sep 25, 2006 in BlogJæja enn ein helgin liðin og maður horfinn aftur í hversdagsleikan sem er háskóla lífið, alltaf nóg af skilaverkefnum fyrir hvern dag og aldrei friður. Mér hefur ekki enn tekist að lesa stak orð í bókum sumra faga því maður eyðir öllum tímanum í að klára skilaverkefnin en ætla að taka mig á í vikunni svo ég þurfi ekki að frumlesa eins mikið fyrir prófin.
Á föstudaginn var vísindaferð í Landsteinar Strengur, umboðsaðila Navision á Íslandi. Bara nokkuð fín ferð, boðið uppá Thule, Carlsberg, hvítt, rautt og Breezer, eitthvað fyrir alla. Í fyrirlestrinu var mikið gert úr því hvað þeir væru alltaf að gera eitthvað annað en vinna, jebbaferðir og gólf og þannig. Það útskýrir allavegana afhverju þetta Navision drasl í vinnunni virkar ekki almennilega meirihlutan af tímanum… Eftir vísó var fyrst haldið á Pravda en síðan á Barinn þar sem verið var að gefa bjór :) Fór með Ella þangað uppeftir en kjánaprikið hafði ekki étið neitt síðan í hádeginu þannig að hann var orðinn ónýtur og tók uppá því að hverfa heim uppúr þurru. Þá var að sjálfsögðu ekkert annað sem kom til greina en að fara aftur á Pravda og drekka aðeins meira.
Á laugardags morgninum var maður svo vaknaður eld snemma (8:30…) til að skella sér snemma í vinnuna svo hægt væri að telja lagerinn á einn tveir og milljón. Við kláruðum uppúr fjögur og þá var farið heim í flýti, hoppað í sturtu og skellt í sig einu glasi af Jack í Drambuie (takk Björk, góð afmælisgjöf). Því næst var áttin tekin niðrí MBL í óvissuferð fyrir alla aðila tengda stjórnskipulagi nemendafélaga HR. Fyrst var auðvitað nóg af áfengi og síðan var haldið niðrí bæ þar sem var farið í Nornabúðina þar sem við fengum verndargripi sem áttu að bjarga okkur frá öllu illu þetta kvöld, en virkar því miður ekki gegn því að verða sót ölvaður :P Eftir Nornabúðina var farið í draugagöngu þar sem var kynnt fyrir okkur athyglisverðir staðir tengdir draugum og öðru mumbo jumbo í Reykjavík, það var athyglisvert fyrst en varð langdregið og allir orðnir frekar svangir þannig að það náðist ekki að klára allan túrinn. Eftir gönguna fórum við svo á Torvaldssen og fengum dýrindis mat og nóg af áfengi. Eftir veruna á Torvaldssen var síðan haldið á djammið.
Related posts from the blog:
- Fyrsta helgin afstaðin
- Seinasti vinnudagur ársins
- Búinn og byrjaður aftur…
- MY 900
- Vantar að kaupa meira minni





