Vodka kippa

Ahh það er búið að vera gott að fá svona “sunnudag” á fimmtudegi, búinn að liggja bara í leti í allan dag. Fór að sjálfsögðu aðeins að skemmta mér í gær. Fyrst var kynning á Acme töskum eftir vinnu hjá okkur. Það voru tveir gaurar sem stofnuðu fyrirtækið sem voru komnir að kynna “fruity” töskurnar sínar. Auðvitað var boðið uppá Stellu eins og venjulega og eftir kynninguna var svo partý hjá Sigga. Í partýinu var Gaui að segja mér frá einstaklega athyglisverðu concepti frá því hann var í Eistlandi, vodka kippa og vodka í boxi (eins og rauðvín), ég var ekki alveg að kaupa það en hann sendi mér mynd:

Það er náttúrulega geðveiki að bjóða uppá vodka í kippum, sé fram á hvað það myndi kosta hér heima, shite…

Talandi um geðveiki þá var einhver geðveikur pípari á Selfossi sem eyddi bloody 70 milljónum í Porche Carrera GT… wtf gaurinn hlýtur bara að vera tengdur í eitthvað vafasamt, ekki séns á að hann hafi efni á þess straight up á píparalaunum.


Related posts from the blog: