Wtf, ég sofa?
Posted on Mar 12, 2007 in BlogÞetta er búið að vera frekar skrýtin helgi, hún eiginlega byrjaði á fimmtudeginum þegar ákveðið var taka “pásu” við tölfræði heimadæmin og ég, Kári og Brynjar kíktum aðeins á Hverfis enda átti Kári afmæli á fimmtudeginum og Brynjar á föstudeginum þannig að tilvalið að vera á bar yfir miðnætti :P Ég var bílstjórinn og fékk mér ekkert að drekka ótrúlegt en satt. Við enduðum að sjálfsögðu á að vera allt allt of lengi og enn einu sinni lennti maður í að vera skila tölfræðinni klukkan tvö, jafnvel þó maður væri löngu búinn með allt nema tvö dæmi…
Á föstudaginn ætlaði ég að vera mega duglegur og eyða föstudagskvöldinu í að læra og fara sko ekki að djamma, það byrjaði svosem ágætlega fór að kíkja á stærðfræði og þannig og byrja að sortera allar glósurnar mínar fyrir prófin. Kvöldið endaði samt á því að enginn sem var uppí skólan nennti að hanga þarna lengur þannig að ég, Kolla, Maríanna, Elli, Sigrún og Kiddi ákváðum að skella okkur á Dillon að fá okkur “einn bjór” og kipptum Kára upp í leiðinni. Þessi eini bjór endaði svo á djammi til klukkan fimm um morguninn en ég var bara rólegur og keyrði heim, eitthvað sem ég hélt að væri ekki fræðilegur möguleiki að myndi gerast á á aðfaranótt laugardags…
Laugardagurinn var svo ekkert nema eitt stórt skull, endaði bara á að fara snemma að sofa og svaf alveg ógeeeeðslega lengi, gerði ekkert af viti allan sunnudag og svo svaf ég líka alveg fáranlega mikið seinustu nótt og alveg fram eftir degi. Held að líkaminn minn hafi farið í verkfall eftir öll þessi skipti sem ég er búinn að vera vaka frameftir að læra uppá síðkastið. Þetta eru allavegana 14 tíma svefn á laugardag og 15 tíma svefn í fyrra nótt sem er crazy, ég er vanur 5-6 tímum…
Allur þessi svefn er búinn að saxa vel á tíman sem ég ætlaði að nota í lærdóm og æfingar þannig að það er búið að setja á hakanum yfir helgina sem er alls ekki jákvætt en vikan verður nýtt í að klára skilaverkefnið í Aðgerðagreiningu með bestu getu og tíma sem gefst. Einnig er ég kominn í skíta form þannig að nú er það bara verzló-style á þetta, próteinríkt mataræði, nóg af því. Rétt tímasetning á hverri máltíð. 3-4 tíma æfingar á dag. Enginn bjór. Ekkert nammi, engin sætindi og engar freistingar í nokkrar vikur. Sjáum hvernig fer, maður tekur oftast mest af fyrst þannig að ég stefni á 3 kíló farinn næsta mánudag.
Rakst líka á tilvitnun í fyrsta forritið sem ég gaf frá mér fyrir svoldlu síðan, Lit2Html, á annari vefsíðu. Frekar fyndið að rekast á umfjöllun um það enda forrit sem ég gerði fyrir íslending fyrir svoldlu síðan og öll skjöl á íslensku. Forritið er einnig byggt 99% á Convert LIT, eina sem ég gerði var að lagfæra íslensku vandamál og smíða GUI úr CLI útgáfunni (enda hata ég forritun).
Rakst líka á kotaku.com í dag sjálfsmynd eftir Piotr Wysocki sem er gerð í Maya sem er án efa flottasta CG mynd sem ég hef séð, skv. honum tók myndin sirka tvær vikur og greinilega vel þess virði:
Related posts from the blog:







Hi there, I know you left me a message on my site, however, I don’t understand your language. So I am not sure what you are trying to tell me. I noticed the WTF in your headline so if you would like me to remove the link to your software then I could most certainly do that. Thanks, Coty.
Hehe, no need to worry the WTF relates to the early part of the post and is about my sleeping habits for the last few days. The reference to your site was just that I found it interesting to see someone post about a software I’d done.
Það er einhver ósýnileg en samt svo augljós tenging á milli Áfengis og Tölfræði.
True dat, held að það sé augljóst að þú ættir að gera fyrirlestur um það sem skil á seinustu skýslunni í Tölfræði :p
Cool, again thanks for the software!
Hej,
Maybe its my system, but sadly the program does not load for me, instead it just disappears after a few seconds after opening. I am on iBook G4 OSX 10.4.10 any suggestions for what I may be doing wrong?
It’s a drag n drop executable, drop the .lit file on it to convert it.
Hi there, I noticed since upgrading to Leopard that lit2html no longer work. After dropping a lit file onto it lit2html just launches and then vanishes with no output.
I know the lit file is valid because I ended up converting it with the command line Convert LIT, but your app was much nicer to use :)