xD ?
Posted on May 5, 2007 in BlogÍ gær var haldið í vísindaferð til Sjálfstæðisflokksins, þetta var 120 manna ferð fyrir Pragma, Viðskiptaráð og Lögréttu. Það kom mér hressilega á óvart að ræðurnar voru mjög stuttar, Guðfinna fyrverandi rektor og Sigurður Kári sáu um ræðurnar því kom þetta extra mikið á óvart enda Guðfinna ekki þekkt fyrir að vera fáorð. Það var boðið upp á slatta af bjór, rauðu og hvítu þannig að allir fengu eitthvað við sitt hæfi. Ekkert varð af hópslagsmálunum milli verkfræðinnar og lögfræðinnar sem búið var að djóka mikið með. Eftir vísó var haldið niðrí bæ, ég, Gissi og einhver gaur úr viðskiptafræði enduðum á að vera þrír einir í annari 60 manna rútunni sem var skull. Enduðum á því að kíkja á Stælinn niðrí bæ og fá okkur djúsí borgara sem færði mann nokkur skref aftur í drykkjunni. Síðan var haldið á Hverfisbarinn þar sem var nægur bjór í boði Sjálfstæðiflokksins og meiri hlutinn af fólkinu var þar að djamma frameftir.
Related posts from the blog:
- Í skólanum er skemmtilegt að vera…..
- 28 days later (pun intended)
- Vísó og draugagangur?
- Prófa rugl…
- Óvissa





