Doctor Who bækur
Posted on May 20, 2006 in BooksMér datt í hug að taka saman umfjöllun um allar Doctor Who bækurnar sem ég hef lesið á undanförnum mánuðum. Eftir að fyrsta sería af nýju þáttunum byrjaði í fyrra var ég gjörsamlega húkked enda Christopher Eccleston algjör snillingur í hlutverki sínu sem Doktorinn. Nýju seríurnar eru í sjálfu sér sjálfstætt framhald af fyrri seríunum 27. Á meðan serían var í pásu var ég feginn að fá mér bækurnar byggðar á seríunni til að halda mér gangandi á milli sería.

Fyrsta bókin var Winner Takes All sem fjallar um það þegar jarðarbúar lenda í því að vera rænt í kjölfar þess að komið er á keppni sem bíður uppá að þeir vinni ferðir til útlanda með því að spila tölvuleik. Svo kemur í ljós að tölvuleikirnir eru í raun stýring á þeim sem hefur verið rænt og keppni um að brjótast inní geimveru hof. Auðvitað reddar Doktorinn og Rose málunum með því að sigrast á geimverunum og bjarga deginum
Einkunn: 2/5

Önnur bókin var The Clockwise Man þar sem Doktorinn og Rose fara til 18. aldar London þar sem þau lenda í brjáluðum geimverum sem eru með fullt af vélmennum gerðum úr úrverki. Atburðarrásin tekur nokkrar skemmtilegar fléttur sem eru skemmtilegar og ég vill ekki skemma það.
Einkunn: 4/5

Þriðja bókin er The Deviant Strain þar sem Doktorinn, Rose og Jack lenda í Rússlandi á áttunda áratugnum þar sem þau lenda í atburðarrás þar sem geimskip sem hefur hrapað í auðninni reynir að safna orku frá íbúum smábæjar til að endurbyggja skipið aftur eftir að hafa hrapað. Doktorinn tekur það náttúrulega ekki í mál og þau taka sig saman með Rússneska hernum í að stoppa geimskipið og þau myrku öfl sem liggja þar að baki.
Einkunn: 3/5

Fjórða bókin er The Stealers of Dreams þar sem Doktorinn og Rose lenda á plánettu þar sem hugmyndarafl og draumar hafa verið bannaðir því að þegar f´lk ýmindar sér eitthvað verður það að raunveruleika í þeirra augum. Rose lendir í því að nota ýmindunaraflið og er handtekin og auðvitað verður Doktorinn að bjarga henni.
Einkunn: 2/5

Fimmta bókin sem ég las var Only Human sem er án efa besta bókin af Dr Who bókunum sem ég hef lesið hingað til. Hún fjallar um að Neanderdals maður birtist í númtíma Cardif og auðvitað verða Doktorinn, Rose og Jack vitni að því. Þau reyna að koma honum heim en hann þolir það ekki þannig að Jack verður eftir og reynir að koma Neanderdalsmanninum inní nútíma samfélag en Doktorinn og Rose fara aftur í fornöld til að reyna að komast að því hvernig hann lennti í nútímanum.
Einkunn: 4/5
Related posts from the blog:
- Over The Hedge
- Góðgerðaruppistand
- Mission Impossible III
- Eragon
- Engin aukning á skortsölum á næstunni





