Halo 2
Posted on Jul 30, 2007 in GamesÞað geirst nú ekki oft að ég gef mér tíma til að spila tölvuleiki, hvað þá klára þá… en viti menn ég leyfði mér að vera latur í gær og spilaði Halo 2 á fullu og þar sem leikurinn er frekar stuttur tókst mér að klára hann þrátt fyrir bölvað vesen með að installa honum á XP. Halo 2 er skotleikur að bestu gerð, upprunalega fyrir X-Box en nú einnig fyrir Windows Vista (XP með viðbót). Leikurinn er að sjálfsögðu framhald af upprunalega Halo og fjallar um stríð mannkynsins við geimverur sem kalla sig “The Covenent” og “The Flood” og dómsdagsvopnin Halo. Leikurinn inniheldur ágætis söguþráð og spilunin er nógu ávanabindandi til að ég nennti að klára leikinn á einum degi (já hann er líka frekar stuttur). Mæli alveg með að kíkja á Halo leikina fyrir þá sem fíla fyrstu persónu skotleiki.

Á öðrum nótum þá rakst ég á þennan trailer frá Comi Con fyrir helgi, Indiana Jones leikur í Lego stíl eins og Star Wars Lego leikirnir vinsælu, líst hörku vel á þennan og á örugglega eftir að spila hann:
Svona í lokin er hér svo mesti fáviti sem ég hef heyrt um lengi !!!
Related posts from the blog:
- LEGO Indiana Jones
- Meiri föstudags stærðfræði
- Ofbeldisfulla pakk
- Blah blah blah
- Beint á iPodinn – September





