Íslenskt iPhone 2.0 lyklaborð ofl
Posted on Jul 25, 2008 in SoftwareATHUGIÐ, ÞETTA VIRKAR EKKI MEÐ iPHONE FASTABÚNAÐI 2.1, NÁNAR UM ÞAÐ SÍÐAR
Eins og flestir tækniáhugamenn vita þá er nú kominn út útgáfa 2.0 af iPhone fastabúnaðinum og býður hann upp á fjöldan alla af viðbótum og þar fremst App Store. Fyrir eldri fastabúnaðinn var mikið vesen að reyna að redda íslensku lyklaborði en það tókst þó á endanum með leiðinda hacki og veseni. Í 2.0 hefur uppsetningunni verið breytt og það var lítið mál að bæta við sér íslensku táknunum í þetta skiptið.
Ef þú ert ekki búin(n) að setja inn 2.0 og aflæsa honum þá eru leiðbeiningar hér:
ATH: Enn sem komið er, er ekki komin aflæsing fyrir SIM kort á 3G iPhone en hann er seldur ólæstur í Belgíu og Ítalíu og er hægt að nota þá síma hér heima:
Leiðbeiningar fyrir aflæsingu á iPhone (Fyrstu kynslóð) – MacOS
Leiðbeiningar fyrir aflæsingu á iPhone (Fyrstu kynslóð) – Windows
Leiðbeiningar fyrir aflæsingu á iPhone 3G – MacOS
Leiðbeiningar fyrir aflæsingu á iPhone 3G – Windows
Aflæsing fyrir iPod Touch er framkvæmd á nær sama hátt nema með iPod ispw skrá.


Athugið að uppsetning miðar við að setja Þ og Ð sem “pop-up” fyrir Z og Ý fyrir Y. Einnig setja .is undir “pop-up” fyrir .com



1. Byrjaðu að uppfæra og aflæsa símanum saman ber leiðbeiningar hér að ofan. Sæktu og afþjappaðu svo skrána iphone2isl-v1.zip. Athugið að skráin inniheldur .orginal. skrár sem eru upprunalegur skrárnar fyrir símann ef eitthvað fer úrskeiðis.

2. Þegar síminn er kominn upp skaltu ræsa forritið Cydia á skjánum.

3. Ef boðið er uppá uppfærslur skaltu innsetja þær með því að velja Install Essential Updates og smella svo á Confirm -> Close Window. Smelltu svo á Home takkan á símanum og ræstu Cydia aftur.
Farðu svo í Cydia -> Install -> Networking og veldu OpenSSH og svo Install -> Confirm -> Close Window. Smelltu svo á Home takkan á símanum.

4. Eftir að OpenSSH er komið inn þarftu að fá SFTP Client, ég mæli með Cyberduck fyrir MacOS og WinSCP fyrir Windows.


5. – MacOS Farðu í Settings -> Wi-Fi -> TENGT NET á símanum og punkteraðu hjá þér IP addressuna á símanum.


ATH: Hér skiptast leiðbeiningarnar í MacOS og Windows leiðbeiningar, smellið hér fyrir Windows leiðbeiningarnar annars lestu áfram.
6. – MacOS Ræstu upp SFTP clientinn (Cyberduck) og settu inn:
Protocol: SFTP
Server: IP á síma (t.d. 192.168.1.35 sbr mynd)
Username: root
Password: alpine
Smelltu svo á Connect. Ef spurt er um host key, veldu always allow.

7. – MacOS Farðu í rótina ( / ) á símanum og þaðan í /System/Library/Frameworks/UIKit.framework/ (eða beint í Cyberduck með cmd+G)

8. – MacOS Hér þarftu að velja hvaða skrár þú villt setja inn (og yfirskrifa þar með eldri):
Keyboard-en.plist__SNYRT (mæli með þessu) endurnefndu þessa Keyboard-en.plist og settu í UIKit.framework möppuna ef þú ert með English (US) (sjálfkrafa valið) lyklaborð valið á símanum og villt einungis breyta því. Þetta snyrtir líka “pop-up” valseðlana þannig að einugis íslensku og skandinavísku stafirnir eru eftir.
Keyboard-en.plist__ALLT endurnefndu þessa Keyboard-en.plist og settu í UIKit.framework möppuna ef þú vill einungis bæta Þ,Ð og Ý við núverandi “pop-up” valmöguleika.
Keyboard-default.plist settu þessa skrá í UIKit.framework möppuna ef þú villt fá Þ,Ð og Ý sem möguleika í “pop-up” valseðlum allra lyklaborða.

9. – MacOS Því að MarkerFelt letrið sem er í iPhone styður ekki Þ,Ý,Ð þarf að skipta því fyrir annað letur svo að Notes sé nothæft. Í möppunni Letur í iphone2isl-v1.zip er að finna skrána CGFontCache.plist sem þarf að setja í /System/Library/Fonts/ á sama hátt og .plist skrárnar hér að ofan.
Uppfært: Ef þú villt frekar halda inni MarkerFelt letrinu skalltu skoða þennan þráð á Maclantic.


10. – MacOSEndurræstu síman með því að halda inni Home og Power takkanum í 5 sekúndur og renna yfir endurræsingar valseðilinn.

6. – Windows Ræstu upp SFTP clientinn (WinSCP) og settu inn:
Host name: IP á síma (t.d. 192.168.1.35 sbr mynd)
User name: root
Password: alpine
Smelltu svo á Login. Ef spurt er um host key, veldu Yes.

7. – Windows Farðu í rótina ( / ) á símanum og þaðan í /System/Library/Frameworks/UIKit.framework/ (eða beint í WinSCP með ctrl+O)

8. – Windows Hér þarftu að velja hvaða skrár þú villt setja inn (og yfirskrifa þar með eldri):
Keyboard-en.plist__SNYRT (mæli með þessu) endurnefndu þessa Keyboard-en.plist og settu í UIKit.framework möppuna ef þú ert með English (US) (sjálfkrafa valið) lyklaborð valið á símanum og villt einungis breyta því. Þetta snyrtir líka “pop-up” valseðlana þannig að einugis íslensku og skandinavíu stafirnir eru eftir.
Keyboard-en.plist__ALLT endurnefndu þessa Keyboard-en.plist og settu í UIKit.framework möppuna ef þú vill einungis bæta Þ,Ð og Ý við núverandi “pop-up” valmöguleika.
Keyboard-default.plist settu þessa skrá í UIKit.framework möppuna ef þú villt fá Þ,Ð og Ý sem möguleika í “pop-up” valseðlum allra lyklaborða.

9. – Windows Því að MarkerFelt letrið sem er í iPhone styður ekki Þ,Ý,Ð þarf að skipta því fyrir annað letur svo að Notes sé nothæft. Í möppunni Letur í iphone2isl-v1.zip er að finna skrána CGFontCache.plist sem þarf að setja í /System/Library/Fonts/ á sama hátt og .plist skrárnar hér að ofan.


10. – Windows Endurræstu síman með því að halda inni Home og Power takkanum í 5 sekúndur og renna yfir endurræsingar valseðilinn.

Eins og annar hugbúnaður sem fer í gegnum miklar breytingar þá er eitthvað af villum sem þvælist með þegar iPhone 2.0 hugbúnaðurinn er settur inn. Hér eru lagfæringar á þeim:

Hér þarftu að lagfæra heimildir í símanum. Í MacOS skaltu byrja á að ræsa Terminal.app, fyrir Windows skaltu sækja og ræsa PuTTY
Næst þarf að tengjast símanum með SSH með því að skrifa inn línuna (settu inn IP töluna sbr að ofan í stað 192.168.1.35):
ssh root@192.168.1.35
Ef spurt er um host key, segðu Yes. Stimplaðu svo inn lykilorðið alpine (sést ekki þegar þú slærð inn). Keyrðu svo þessar línur hér:
chmod 777 /var/mobile/Library/Mail
chown mobile /var/mobile/Library/Cookies/
chown mobile /var/mobile/Library/Cookies/Cookies.plist
Ferlið lítur svona út, það sem slegið er inn er feitletrað:
Hansi:~ hansi$ ssh root@192.168.1.35
The authenticity of host ’192.168.1.35 (192.168.1.35)’ can’t be established.
RSA key fingerprint is RUNA.
Are you sure you want to continue connecting (yes/no)? yes
Warning: Permanently added ’192.168.1.35′ (RSA) to the list of known hosts.
root@192.168.1.35′s password: alpine
Hansi-s-iPhone:~ root# chmod 777 /var/mobile/Library/Mail
Hansi-s-iPhone:~ root# chown mobile /var/mobile/Library/Cookies/
Hansi-s-iPhone:~ root# chown mobile /var/mobile/Library/Cookies/Cookies.plist

Til að lagfæra þennan galla þarf að yfirskrifa tvær skrár á símanum með nýrri útgáfum, þessar skrár eru í möppunni Laga símanúmer í iphone2isl-v1.zip hér að ofan. Skrárnar eru afritaðar inn á sama hátt og lýst er hér að ofan fyrir hinar .plist skrárnar.
PhoneNumberTemplates.plist fer í
/System/Library/PrivateFrameworks/AppSupport.framework/
UIPhoneFormats.plist fer í
/System/Library/Frameworks/UIKit.framework/PhoneFormats/
Endurræstu svo síman.

Ekki hægt að slökkva á Auto Correction
Enn sem komið er, er ekki möguleiki á að slökkva á AutoCorrection í símanum en tímabundin lausn er að fara í /System/Library/TextInput/ á símanum og endurnefna það tungumál sem þú notar sem TextInput_XX.bundle.afrit. T.d. er TextInput_en.bundle sjálfgefið við innsetningu og þarmeð endurskýrður TextInput_en.bundle.afrit og síminn svo endurræstur.

Related posts from the blog:






Snillingur að vanda :o)
Þetta er alger snilld!
Ég var að prófa og rakst á tvennt:
Stórt Ý virðist vanta, en það litla birtist þegar Shift er ekki niðri.
Getur þú sett Ðð undir d ? Það væri hegðun sem myndi elta uppsetninguna á farsímum mikið betur að hafa það undir Z?
Hefur þú fundið einhverja leið til að patcha Regions ?
virkar þetta á 2.0.1?
@Guðjón: Nei ég get ekki sett inn ð undir d fyrr en .artwork fyrir 2.0 verður opnanlegt. Engin leið til að patcha region fyrr en UIKit er decompiled
@andri: Já.
Þakka þér kærlega fyrir þessar leiðbeningar, virkar vel á iPhone 3G með 2.0.1 :D
Virkar líka fyrir 2.1, ég notaði reyndar bara símanúmera fixið :D takk fyrir mig
Það hrynur alltaf hjá mér forritið (sama hvort það er Mail, Notes eða SMS) þegar ég held takka niðri??? Er með 2.1, allt annað virkar fínt. Einhver með lausn? Takk samt :)
Ekki nota þetta lyklaborð með 2.1 það er breyttur xml grunnur.