Eragon

Vá þetta var sóun á peningum, við fórum að sjá Eragon áðan, það er búið að hypea þessa mynd í svoldinn tíma sem næsta Lord of the Rings og guð má vita hvað. Bækurnar um Eragon hafa víst verið mjög vinsælar en ég hef ekki gefið mér tíma til að lesa þær. Myndin fjallar um strák sem finnur dreka egg og verður einhver dragon rider og á að bjarga landinu frá hinum illa konungi sem kúar fólkið. Þetta er svona la-la plot og hefst ágætlega en myndin er öll eins og hún sé í fast forward allan tíman og vá hvað scriptið er mikið rusl… það er eins og það hafi ekki verið neitt quality control við gerð myndarinnar. Það eru allt of fáir karakterar og þeir sem koma fyrir eru lítið sem ekkert þróaðir og eru ótrúlega eitthvað “í einvídd”. Einnig eru flest settin mjög slöpp og eins og það hafi verið lögð mjög lítil vinna í þau og peningunum frekar eytt í special effects fyrir drekann. Fór eitthvað á netið áðan og las mér til og bókin er víst mun betri, búið að klippa myndina allt of mikið niður og sleppa lykilatriðum og fullt af sögupersónum. Mjög kjánalegt sérstaklega þar sem þetta er sett upp sem fyrsta myndin af framhaldssögu og það er ekki séns á að það verði gerð framhaldsmynd því þessi er rusl og á ekki eftir að skila neinum gróða.

Ekki eyða pening í að sjá þessa mynd, kanski hægt að eyða tíma í að horfa á hana í sjónvarpinu eða sem dl en ekki í bíó eða kaupa á DVD.


Related posts from the blog: