Golden Compass

Myndin sem var titluð sem jólamyndin í ár var í þetta skiptið fyrsta myndin í His Dark Materials þríleiknum. Myndin segir frá ævintýrum Lyru sem býr í hliðrænum heimi við okkur þar sem sálin er í formi dýra sem eru fylgjur einstaklinga og eru rótgróin hlutur þeirra. Lyra kemst að samsæri um að stöðva frænda hennar sem er að rannsaka dularfullt efni sem á að sanna tilvist hliðrænna heima.

Þetta er ágætis ævintýramynd en hún er svoldið barnaleg á köflum en maður verður heldur betur pirraður í endan þegar næstum engin niðurstaða var komin á neitt og svo kom kjánaleg upptalning á því sem verður kanski svarað í næstum mynd…. ég mæli með að fólk sleppi bara þessari mynd og sjái allar þrjár í röð þegar þær eru allar komnar út.


Related posts from the blog:


1 Comment

  1. Vá hvað ég er sammála þér. Það er eins og þeir hafi verið búnir með myndina áttað sig á því að það væru fleiri eftir og bætt lokaatriðinu við. Pirraði mig frekar mikið. En ég horfði bara á Bond gelluna í staðinn :)