Hard Candy

Önnur mynd sunnudagsins var Hard Candy mögnuð mynd frá 2005 sem ég skil ekki að hafi farið framhjá mér. Myndin fjallar um 14 ára stelpu sem hefur verið að spjalla við 32 ára ljósmyndara yfir netið í þrjár vikur og samþykkur að hitta hann og leyfa honum að mynda sig. Hún er samfærð um að hann sé barnanýðingur og ætlar sér að koma upp um hann og láta hann þjást fyrir gjörðir sínar. Myndin er vægast sagt margbrotin og er í raun alveg rússíbana ferð af tilfinningum og þó svo að hún sé ekki beint grafísk á nokkurn hátt eru samræðurnar og hótanirnar mjög margþrungar og rosalegar.
Einkunn: 5/5


Related posts from the blog: