I Am Legend
Posted on Dec 23, 2007 in MoviesÉg horfði á nýju myndina með Will Smith, I Am Legend í gær sem er vægt sagt frjáls túlkun á samnefndri bók Richard Matheson. Myndin fjallar um Robert Neville sem er að hann best veit eini eftirlifandi maðurinn á jörðinni eftir að lækning við HIV stökkbreytist og drap 99% mannkyns. Robert Neville ákvað þegar “ground zero” sem var New York var tæmd að verða eftir og vinna að lækningu við sjúkdómnum sem stökkbreyti meirihluta eftirlifandi mannvera í skrímsli. Myndin segir raunarsögu Neville og fer Will Smith mjög vel með hlutverkið og túlkar Neville mjög vel og á samfærandi hátt. Ég var ekki með miklar væntingar þegar ég ákvað að sjá myndina en hún kom mér skemmtilega á óvart og er mjög fín.

Related posts from the blog:





