Indiana Jones 4

Var að koma af Indiana Jones and the Kingdom of the Crystal Skull áðan og er bara vel sáttur. Vil sem minnst segja um söguþráðinn svo að fólk geti notið þess að horfa á hana án þess að ég hafi eyðilagt myndina fyrir þeim. Í grunninn fjallar myndin samt að sjálfsögðu um ævintýri Indiana Jones, í þetta skiptið árið 1957 þar sem að Indy flækist í vef Rússa sem leita leyndardómsfullrar kristal hauskúpu. Sagan er ágætt og mjög í anda hinna myndana. Eina sem sker þessa mynd sterklega frá eldri myndunum er þróunin í tæknibrellum og CGI sem gerir fullt af atriðum í myndinni ýktari en svipuð atriði í eldri myndunum. Eina sem ég þoldi ekki við myndina var ÍSSKÁPS ATRIÐIÐ, það var tilgangslaust og asnalegt.

Alla vegana, allir eiga að fara á þessa mynd í bíó sem fyrst!



Related posts from the blog: