Kvikmyndagláp í mars

Ákvað að taka bara saman myndirnar sem ég sá í mars að 300 undanskyldri í eina færslu, eins og venjan er í kringum próf nennir maður einhvernvegin að gera allt annað en að læra þannig að ég er búinn að sjá nokkrar rugl myndir uppá síðkastið:

Hot Fuzz

Hot Fuzz fjallar um by-the-book super löggu í London sem vinnur vinnuna sína of vel þannig að restin að löggunum koma illa út. Því er hann sendur í lítinn smábæ sem lítur út fyrir að ekkert gerist í en allt í einu fara að gerast undarleg “slys” sem eru í raun morð og partur af stóru samsæri. Þetta er náttúrulega ekkert nema fáranlegur söguþráður en myndin er einmitt frá sömu framleiðendum og Shaun of the Dead og með sömu aðalpersónur og húmorinn er eftir því. Vel klikkuð mynd uppfull af húmor, action og ofbeldi af bestu gerð. Must see.

TMNT

Hver man ekki eftir gömlu góður Turtles. Núna eru skjalbökurnar einmitt snúnar aftur eftir nokkra ára hlé. Hópurinn hefur orðið sundurtættur og hættir að berjast gegn glæpum en þegar ný hætta kemur fram á sjónarsviðið þá safnast þeir saman aftur til að bjarga deginum. Myndin er greinilega framhald af Turtles 1 en byggir bara lauslega á myndum 2 og 3 nema að í þetta skiptið er um þrívíðar teiknimynd að ræða. Sagan í myndinni er drullu leiðinleg og ég mæli ekkert með að fólk sé að eyða tíma í að glápa á þetta, frekar horfa bara á gömlu myndirnar aftur.

School for Scoundrels

Jon Heder leikur í þessari mynd glataðan gaur sem þorir ekki að standa á eigin fótum og á í bölvuðu veseni með tala við konur (hey eitthvað sem við eigum sameiginlegt). Til að losna úr þessu vesenis ástandi fer hann á námskeið hjá gaur sem er leikinn af Billy Bob Thornton. Hann á að vera rosa svalur og redda Heder og félögum en svo steypist söguþráðurinn í að vera nákvæm kópering á Anger Management þar sem gaurinn sem sér um meðferðina reynir að stela stelpunni. Allvegana byrjar myndin lala en fer svo bara út í leiðindi og eftir hlé er maður bara farinn að bíða í örvæntingu eftir því að myndin klárist loksins. Mæli ekki með að eyða tíma í þessa.

Happily Never After

Það er aldeilis í tísku að gera þessar þrívíðar teiknimyndir. Happily Never After var titluð sem gaman mynd um ævintýra persónur í anda Shrek (sem ég hafði gaman af). Þetta er helber lygi, þessi mynd er ógeðslega sóðanlega leiðinleg, sagan er glötuð, persónulegurnar eru glataðar og ég veit ekki hvað. Ekki horfa á þessa mynd hún er sorp og tímasóun.

Meet The Robinsons

Meet The Robinsons er enn ein þrívídar teiknimyndin sem hefur komið út að undanförnu. Myndin fjallar um lítin munaðarleysingja sem leitast við komast að því hver móðir hans er með því að finna upp vél sem les minningar. Atburðarrásin fer á þann veg að hann brotlendir í framtíðinni og þarf að lagfæra tímavélina til að komast heim. Myndin er að sjálfsögðu svoldil krakka mynd, söguþráðurinn er lítill sem enginn en húmorinn er allavegana til staðar þó hann sé svoldið ruglaður. Allt í lagi að glápa á.

Wild Hogs

Veit ekki alveg afhverju ég sá þessa, sennilega því að ég fór á hana frítt og hafði ekkert betra að gera. Sagan fjallar um fjóra miðaldra menn sem eru saman í svona sub-urban móturhjóla “gengi” og ákveða að fara saman í ferðalag. Þeir lenda í einhverju veseni með alvöru mðóturhjóla gengi, redda því og þá er sagan öll. Þessi mynd er ekki um neitt, það eru tvö eða þrjú fyndinn atriði (aðalega með gaurnum sem leikur Dr. Cox í Scrubs) en ekki mikið meira. Allt í lagi mynd að sjá í sjónvarpinu en ekki eyða pening í hana.

Epic Movie

Ég hef aldrei á minni stuttu ævi hatað mynd jafn mikið, jeminn eini hvað þetta er mikið rusl. Vinsamlegast ekki gera sjálfum ykkur það að horfa á þetta ógeð. Nuff Said.


 
 
Að lokum eru B-Myndir/óþarfa framhaldsmyndir sem ekki er einu sinni þörf á að skrifa um þær eru svo glataðar, passið bara að sjá þær alls ekki:

I’ll alway know what you did last summer.
Van Wilder 2
Highlander – The Source


Related posts from the blog: