Mission Impossible III

Ég og Óli skelltum okkur á Mission Impossible III í gær. Myndin hefst þar sem Ethan (Tom Cruise) úr fyrri myndunum er hættur að vera virkur meðlimur IMG og hafði tekið að sér að þjálfa fyrir IMF. Einnig er hann trúlofaður og tilbúinn að taka lífinu rólega en auðvitað fær hann það ekki skaka á og þegar einum af þeim sem hann þjálfaði er rænt fellur hann inní atburðarás þar sem að allt virðist vera að fara til fjandans en auðvitað reddar kallinn málunum. Myndin er margfallt betri en númer 2 og jafnvel betri en sú fyrsta. Eitt af því skemmtilega í myndinni að atburðarásin er frekar dreifð og þrjú stór atriði til móts við eitt í hinum myndunum en það sem dróg myndina niður var hversu hrikalega lélegur leikari Tom Cruise er, atriðin þar sem hann þurfti að útskýra sig eða varð fyrir miskilning voru fáranleg. Mæli með að allir sem hafa séð fyrri myndirnar eða jafnvel ekki sjái þessa.
Einkunn: 3/5


Related posts from the blog: