Pirates of the Caribbean – Dead Man’s Chest
Posted on Jul 29, 2006 in MoviesÍ gær var ákveðið að nú skyldi sko vera edrú helgi (í fyrsta skipti í marga marga mánuði) enda þegar búið að skipuleggja drykkju allar helgar í ágúst. Fyrst maður var nú edrú ákváðum við að skella okkur á Pirates II og að sjálfsögðu var farið á digital sýningu í Kringlunni, ég held ég geti ekki farið á neitt annað héðan af, enda ekki búinn að gera það síðan ég fór á fyrstu myndina digital. Myndin er að sjálfsögðu framhaldsmynd og heldur áfram stuttu eftir fyrri myndina. Will Turner og Elizabet Swann eru handtekin fyrir að hjálpa Jack Sparrow við að flýja í fyrri myndinni og Will er boðið að þau sleppi ef honum tekst að ná í áttavitan hans Jack. Jack kemst hinsvegar að því að það eru 13 ár síðan hann gerði samning við yfirnáttúrulega sjóræningjan Davy Jones sem ætlar nú að fá sínu fram með því að endurkalla svörtu perluna aftur á hafsbotn og uppúr þessu hefst heljarinnar ævintýr. Þessi mynd er svo mikil snilld, þetta er bara back to back sjóræningja ævintýri sem allir geta haft gaman af. Það eru mörg mögnuð atriði og þá sérstaklega fáranlega skemmtileg og flott skylmingaratriði. Get varla beðið eftir að hún komi á DVD og þó hún sé frekar löng (150 mín) vona ég að hún verði með einhverjum auka atriðum þá. Svo er náttúrulega bara biðin langa eftir númer þrjú.
Einkunn: 5/5
Related posts from the blog:
- Pirates of the Caribbean – At World’s End
- Shaun of the Dead
- Land of the Dead
- I Sell The Dead
- The Evil Dead Trilogy






