South Park Páska Þátturinn (11×05)
Posted on Apr 11, 2007 in Movies
Margir hafa örugglega í gegnum tíðina vellt fyrir sér hvaðan tengin er milli Páskahérans, Páskaeggja og endurrisu Jesús sem átti sér stað á Páskunum. Þetta var einmitt spurningin sem Stan lagði fyrir sig í seinasta þætti af South Park sem var sýndur á Comedy Central seinastliðin miðvikudag rétt áður en Páskahátíðin hófst. Stan leggur það fyrir sig að komast að því hvaðan hugmyndin á bakvið skreyttu eggin og páskahéran koma og hver tenging þeirra sé við Jesús. Hann kemst að því að faðir hans er meðlimur í “The Hare Club for Men” leynilegu trúarfélagi sem hefur haldið uppi hugmyndinni að Pétur, fyrsti postulli Jesús og fyrsti páfinn hafi verið héri og hafi borðað egg í seinustu kvöldmáltíðinni. Uppúr þessu kemur svo rugluð grín af atburðum Da Vinci Code og auðvitað er sett útá Kaþólsku kirkjuna eins og South Park einum er lagið en þetta er alveg frábær þáttur og ég mæli með að kíkja á hann.
Ef þið viljið sjá þáttinn þá er hægt að horfa á hann hér að neðan:
Related posts from the blog:
- Tommi og Jenni – Týndi þátturinn
- The Sentinel
- Engin aukning á skortsölum á næstunni
- LEGO Indiana Jones
- Spider-Man 3






