The Nines

Horfði á myndina The Nines um daginn og hún kom svona skemmtilega á óvart. Það er mjög erfitt að fjalla um myndina án þess að eyðileggja alla blessuðu plot twistana sem gera hana að þeirri snilld sem hún er. Myndin segir sögu þriggja einstaklinga sem líf þeirra er tengt á ótrúlegan hátt sem er einnig stærsti plot twistinn í myndinni. Einn einstaklingurinn er leikari sem lendir í hrikalegu áfalli þegar konan hans fer frá honum, annar einstaklingurinn er leikstjóri sem lendir í veseni með stúdíóið sem er að framleiða þættina hans og sá þriðji er forritari sem er í ferðalagi með fjölskyldunni þegar bílinn þeirra bilar. Það er í raun ekki hægt að segja meira án þess að eyðileggja myndina.

Myndin er mjög mjög mjög góð og ég mæli með að allir sjái hana, sérstaklega ef þeir hafa áhuga á myndum með skemmtilegum plot twistum og háfleygum hugmyndum um raunveruleikan.


Related posts from the blog: