The Simpsons Movie
Posted on July 29, 2007 in Movies
Fór að sjá Simpsons myndina með Bjössa í gær (sleppa djammi til að fara í bíó???). Maður var náttúrulega að búast við að myndin yrði ekkert sérstök, enda búið að bíða lengi eftir að hún kæmi út. Myndin fjallar um að Homer mengar stöðuvatnið í Springfield og EPA (Enviromental Pollution Agency) lætur loka Springfield af með stórri hvelfingu þannig að allir verða brjálaðir útí Homer og Simpsons fjölskyldan þarf að flýja tryllta bæjabúa. Myndin er í sjálfu sér bara eins og einn stór og langur þáttur. Ekki að það sé endilega slæmur hlutur en maður kanski bjóst við einhverjum epic fyrst þetta er loksins orðið að bíómynd. Myndin var mjög skemmtileg og semi CG teiknistíllinn kom mjög flott út. Skyldu áhorf.

Related posts from the blog:





Jebb, geðveik mynd!
Spiderpig does whatever a spiderpig does