Beint á iPodinn – Ágúst

Uhhhjeee, bara einn dagur eftir enn, vinna á morgun og svo beint heim að skipta um föt, henda booze í bílinn og buna í Þorlákshöfn að skella sér í Herjólf á leið til Eyja!!!

Diskar mánaðarins eru hinsvegar eins og venjulega tveir og er ég ekki frá því að þeir verði blastaðir eitthvað þann skamma tíma sem maður mun eyða í íbúðinni yfir helgina. Fyrri diskurinn er Because of the Times með Kings of Leon. Hér er á ferðinni frábær diskur frá snilldar rokkbandinu Kings of Leon og ekki veit ég hvernig hann fór framhjá mér en hann kom út í apríl. Diskurinn í heild sinni er mjög góður og frekar jafnt tempo í gangi í flestum lögum og gott að hlusta á hann allan í heild sinni. Samt er eitt lag sem sker sig svoldið úr sem klárlega besta lagið og það er án efa lagið Fans sem er algjör snilld.

Seinni diskur mánaðarins er diskurinn Between The Heart And The Synapse með The Receiving End of Sirens sem er lítið þekkt Indie band. Hér á ferðinni alveg frábært rock sem er pínku sérstakt og rólegt á sumum köflum en stendur vel undir nafninu rock á öðrum köflum. Mæli klárlega með að menn skoði þennan ef þeir eru að leita að einhverju nýju fersku bandi til að hlusta á. Bestu lög disksins eru Broadcast Quality og Planning A Prison Break. Einnig er ný plata með þeim, The Earth Sings Mi Fa Mi á leiðinni 7. ágúst þannig að maður þarf að kíkja á hana.


Related posts from the blog: